Tenglar

Þróunarverkefnið “Garðfuglaskoðun” naut styrks úr Þróunarsjóði framhaldsskóla árið 2007
|
Garðfuglavefurinn - kynning
Markmiðið með þessum vef er að vekja athygli á fuglalífi í íslenskum görðum, miðla upplýsingum um garðfugla, fá landsmenn til þess að skoða fugla í görðum, læra að þekkja fugla, vekja áhuga á fuglaskoðun og hversu auðvelt það er að stunda hana. Ennfremur er markmiðið að afla upplýsinga um fugla í görðum, hvaða tegundir eru til staðar og í hve miklu magni.
Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson líffræðingar og framhaldsskólakennarar eru höfundar efnis á Garðfuglavefnum og sjá um uppsetningu og viðhald hans.
Garðfuglaskoðun 29. jan - 1. febr. 2010 - NIÐURSTÖÐUR
Framkvæmd athugunarinnar er einföld, það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í klukkutíma á föstudaginn 29. jan., laugardaginn 30. jan., sunnudaginn 31. jan. eða mánudaginn 1. febr. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.
Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Upplýsingar um fóðrun garðfugla er hægt að finna á vefsíðum um "fóðrun". Upplýsingar um gardfugla og fóðrun þeirra er einnig að finna í Garðfuglabæklingi Fuglaverndar.
Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður með því að fara í krækjuna "skrá niðurstöður".
Einnig er hægt að sækja eyðublað og skrá þar upplýsingar í tölvu og senda á póstfang garðfuglavefsins, gardfugl@gmail.com.
Síðastliðinn vetur tóku nemendur í FSu á Selfossi og ME á Egilsstöðum þátt í Garðfuglaskoðun ásamt fjölda fólks víðsvegar af landinu, alls 149 þátttakendur. Nú munu nemendur frá MS í Reykjavík og Flensborgarskólanum í Hafnarfirði bætast við. Markmiðið er að virkja nemendur framhaldsskóla sem víðast af landinu til þátttöku í verkefninu Garðfuglaskoðun.
Garðfuglakönnun (25. okt. 2009 - 25. apríl 2010).
Fuglavernd hefur um árabil staðið fyrir annarri umfangsmeiri rannsókn á garðfuglum. Markmiðið með henni að athuga hvaða fuglar sækja í garða, í hve miklu magni og breytingar í tegundasamsetningu yfir vetrarmánuðina, skoða breytileika milli ára. Í Garðfuglakönnun fylgist athugandi með fuglalífi í garðinum allan veturinn frá því í lok október fram í lok apríl.
Veturinn 2009-2010 er garðfuglakönnunin Fuglaverndar frá 25. október til 25. apríl 2010.
Talningaeyðublað og leiðbeiningar er hægt að sækja hér: Word og PDF. |
Niðurstöður fyrri garðfuglaskoðana
Garðfuglabæklingur
Fuglavernd hefur nýlega endurútgefið bækling um garðfugla með styrk frá Pokasjóði. Í bæklingnum má lesa sér til um hvernig hægt er að gera garðinn sem mest aðlaðandi fyrir fugla. Hægt er að nálgast bæklinginn hjá Fuglavernd.

|