|
|
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 150-153 (123-126).
Verkefni
Gott er að æfa viðtalstækni með því að taka viðtal við sessunaut eða bekkjarfélaga í skólanum. Ef vel tekst til og viðtalið kemur fyrir eyru eða sjónir almennings getur það, jafnframt því að vera ritunaræfing, orðið ágætis kynning innar bekkjar eða skóla.
Fyrsta skref
Fyrsta verkið er að velja góðar spurningar til að vinna út frá. Hér verður líka að hafa í huga hvers konar viðtal um er að ræða. Gerum ráð fyrir að það eigi að vera persónulegt viðtal, nokkuð ítarleg kynning á viðmælanda.Annað skref
Þá er að ræða málin og skrá niður minnisatriði. Hér væri líka gott að skrifa hjá sér stutta lýsingu á viðmælanda og sömuleiðið orðalag hans þegar það skiptir máli, til dæmis þannig að það varpi ljósi á persónu hans.Þriðja skref
Úrvinnsla efnisins er næst á dagskrá. Ef viðtalið á að vera sæmilega efnismikið þarf að eyða drjúgum tíma í þennan þátt. Til dæmis þarf viðtalið að mynda heild. Hér verður að meta hvort spurningarnar sjálfar þurfi að vera í viðtalinu eða hvort svörin ein nægi.Fjórða skref
Góð viðtöl eru meira er tal tveggja manna. Spyrillinn þarf að semja inngang sem kynnir efnið og vekur áhuga á því, og lokaorð þar sem fram kemur niðurstaða um viðtalið og umræðuefnið. Einnig er algengt að spyrill lífgi upp á persónuleg viðtöl með innskotum sem geta lýst viðbrögðum viðmælanda við einstökum spurningum eða öðru því sem varpar ljósi á efnið.Fimmta skref
Prófarkalestur og lokafrágangur. Flutningur eða prentun?
Verkefnabanki við Hagnýt skrif © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2003