|
|
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 59-90 (59-74).Verkefni 1
Veldu eitt eftirfarandi orða og skrifaðu stutta skýringu á því frá eigin brjósti. Leitaðu síðan fanga í Slangurorðabókinni, Orðabók Menningarsjóðs og Samheitaorðabókinni. Vísaðu ávallt til heimilda hverju sinni. Taktu að lokum saman heimildaskrá verkefnisins.Verkefni 2baka brenna eyðimörk gengi heitur hundur kaka klippa manni padda rappa skápur uppi
Skoðaðu greinar í fræðilegum tímaritum, t.d. Skírni og Sögu. Finndu tilvísanir og berðu þær saman við heimildaskrána. Atugaðu vel hvernig beinar og óbeinar tilvitnanir eru notaðar.Verkefni 3
Prentvæn útgáfaTextinn sem hér fer á eftir er tekinn úr blaðagrein eftir Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur og birtist í Morgunblaðinu 15. október 1999. Greinin ber yfirskriftina "Ímynd og raunveruleiki":
Árið 1989 var samningur um réttindi barna samþykktur. Í dag eru öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna aðilar að samningnum utan tvö en þau eru Sómalía og Bandaríkin. Í 37. gr. Barnasáttmálans er kveðið á um að ekki skuli leggja dauðarefsingu eða lífstíðarfangelsi án möguleika á lausn við afbrotum sem menn yngri en 18 ára hafa framið. Auk þess er í Barnasáttmálanum kveðið á um að frelsissviptum börnum skuli haldið aðskildum frá fullorðnum föngum. Nýleg skýrsla Amnesty International greinir frá stöðu barna innan bandaríska réttarkerfisins. Þar kemur m.a. fram að æ algengara er að börn séu sótt til saka eins og um fullorðna einstaklinga sé að ræða. Mörg börn sitja í fangelsum mánuðum saman áður en réttað er í málum þeirra. Þúsundir barna eru í fangelsum þar sem fullorðnir fangar eru einnig í haldi. Á dauðadeildum víða um landið bíða einstaklingar aftöku fyrir brot sem framin voru áður en þeir náðu 18 ára aldri.
Ímyndaðu þér nú að þú sért að skrifa ritgerð um svipað efni og höfundurinn hér að ofan og notir greinina sem heimild. Búðu til sams konar tilvitnanir og dæmin á bls. 69 (65-66) í bókinni sýna, þ.e.
Þú verður að sjálfsögðu að semja stuttan texta í kringum tilvitnunina frá eigin brjósti. Gleymdu ekki að vísa í heimildina hverju sinni.
- beina tilvitnun afmarkaða frá meginmáli,
- beina tilvitnun fellda inn í meginmál og
- óbeina tilvitnun.
Verkefni 4
Finndu 2 blaðagreinar um sama efni þar sem haldið er fram mismunandi sjónarmiðum. Skrifaðu stutta blaðagrein þar sem þú tekur afstöðu í málinu og vitnar (helst óbeint) í báðar greinarnar máli þínu til stuðnings. Gleymdu ekki heimildaskránni.
Verkefnabanki við Hagnýt skrif © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2003