|
|
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 101-105/84-88 (bréf), 106-109/89-92 (fréttir), 124-127/104-107 (minningargreinar) og 135-136/113-114 (ræður).Oft hentar vel að tvinna saman bókmenntalestur og ritun. Markmiðið er þá einkum tvíþætt; að þjálfa nemendur í ritun og stuðla að persónulegri upplifun á viðkomandi skáldverkum.
Í skáldsögum eru yfirleitt margar eyður sem lesendur geta fyllt í út frá eigin hugarflugi og skilningi á efninu. Eru Íslendingasögur þá ekki undanskildar. Þessar eyður er kjörið að nýta til ritunarverkefna. Hér fara á eftir nokkur sýnishorn slíkra verkefna úr Gunnlaugs sögu og Sölku Völku.
Verkefni 1
Skrifaðu bréf (Salka Valka)
Athugaðu að leiðbeiningar bókarinnar um bréfritun (bls. 101/84 og áfram) miðast við formleg bréf. Hér á að semja persónuleg bréf og þess vegna má slá lítillega af kröfum um formsatriði. Til dæmis þarf varla haus og efnislínu.Þú átt að:Frá Sigurlínu til Sölku. Bréfið fannst eftir að Sigurlína fyrirfór sér Frá Sölku til Arnalds eftir að hann er farinn til Ameríku Frá Arnaldi til Guju eftir fóstureyðinguna Frá Sigurlínu til föður Sölku Lengd: 1-2 bls.fara eftir leiðbeiningum um form sendibréfa búa til hugmyndalista hafa bréfið persónulegt semja uppköst og vinna með þau fá einhvern hæfan til að lesa próförk ganga vel frá lokagerðinni
Verkefni 2
Semdu frétt (Gunnlaugs saga)
Notaðu hv-orðin (bls. 106/89)Þú átt að:Hjón í Borgarfirði endurheimta dóttur sína Smalamaður hverfur Íslendingar falla í Noregi Gunnlaugur gerir það gott erlendis Helga hin fagra látin Lengd: 1 bls.fara eftir leiðbeiningum um fréttaskrif fylgja hv-orðunum semja góða fyrirsögn búa til hugmyndalista semja uppköst og vinna með þau skipta á dálka fá einhvern hæfan til að lesa próförk ganga vel frá lokagerðinni
Verkefni 3
Semdu minningar- eða afmælisgrein (Salka Valka)Þú átt að:Um Sigurlínu Um Sölku Völku Um Steinþór Um Arnald Lengd: 1-2 bls.fara eftir leiðbeiningum um slíkar greinar hafa greinina persónulega sýna þekkingu og skilning á sögunni búa til hugmyndalista semja uppköst og vinna með þau fá einhvern hæfan til að lesa próförk ganga vel frá lokagerðinni
Verkefni 4
Undirbúðu (og flyttu) afmælisræðu (Salka Valka)
Hér reynir á að semja góða mannlýsingu.Þú átt að:Um Sigurlínu Um Sölku Völku Um Steinþór Um Arnald Um Bogesen Lengd: 1-2 bls. (ef samfellt mál, sbr. kaflann um ræður í Hagnýtum skrifum bls. 135/113).fara eftir leiðbeiningum um mannlýsingar og ræður hafa verkið persónulegt sýna þekkingu og skilning á sögunni búa til hugmyndalista semja uppköst og vinna með þau fá einhvern hæfan til að lesa próförk ganga vel frá lokagerðinni
Verkefnabanki við Hagnýt skrif © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2003