|
|
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 35-36, 118-120 (101-103).
Verkefni 1
Leiðarlýsing
Semdu leiðarlýsingu þar sem ókunnugum er leiðbeint frá bílastæði skólans inn í ákveðið herbergi í skólabyggingunni, t.d. aðalskrifstofu eða ákveðna skólastofu.Verkefni 2
Verklýsing eða notkunarleiðbeiningar
Veldu þér verk sem þú veldur eða tæki sem þú kannt vel á. Semdu verklýsingu eða notkunarleiðbeiningar sem geta nýst þeim sem ekkert kunna til verka.Verkefni 3
Semdu tvenns konar lýsingu á herberginu þínu. Önnur lýsingin á að vera hlutlæg og rökleg, þ.e. byrja á stærstu dráttum og enda á hinum minni. Hin á að vera huglæg og leggja mesta áherslu á það áhugaverðasta í herberginu.Verkefni 4
Veldu þér vöru sem gjarnan er auglýst (dæmi: gosdrykkur, leikfang, bíll, ...). Semdu:Berðu ritsmíðarnar saman. Í hverju birtist munurinn?hlutlæga lýsingu fyrir neytendaþátt í blaði huglæga auglýsingu
Verkefnabanki við Hagnýt skrif © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2003