|
|
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 114-117 (97-100).
Verkefni 1
Skrifaðu lesendabréf í nafni tilbúinnar persónu. Þessi persóna kvartar yfir ákveðinni vöru sem hún hefur nýlega keypt. Þú getur haft hliðsjón af eftirfarandi gátlista:Verkefni 2Hvers vegna var varan keypt? Hvar keypt? Hvernig notuð? Yfir hverju er kvartað? Notkunarreglur Aukaverkanir Óvænt áhrif? Útlit vöru Verð og gæði Virkni, ending Sögur af reynslu, uppákomum Sala, afgreiðsla Upplýsingar og margt fleira ...
Farðu nú í hlutverk framleiðanda eða seljanda vörunnar og svaraðu lesendabréfinu. Þú verður að gera það málefnalega og án alls hroka eða yfirgangs, því þú vilt að sjálfsögðu selja meira af þinni góðu vöru. Hafðu í huga það sem sagt eru um viðtakendur og sjálfsmynd höfundar (bls. 20-21).Verkefni 3
Svaraðu einu af lesendabréfunum í bókinni bls. 21, 115 (98) eða 116 (99). Þú ræður hvort þú tekur undir viðhorf höfundar eða andmælir þeim. Bréfið þarf að vera málefnalegt, áhrifaríkt og fara eftir leiðbeiningum bókarinnar.
Verkefnabanki við Hagnýt skrif © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2003