Hugmyndir
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 16-19.
 

Verkefni 1
Listamenn eru atvinnumenn í hugmyndasöfnun. Þeir sem yrkja hefðbundin ljóð þurfa t.d. að renna margoft yfir orðasafnið í kollinum á sér til að finna rímorð og geta sumir verið býsna snöggir að koma saman skammlausri vísu. Þetta er ágætis æfing fyrir heilabúið. Prófaðu bara! Síðan getur þú flett upp í Rímorðasafninu til samanburðar.

Finndu rímorð við:
 

ást hátíð fótur jörð
hata farinn sinn vel
þig seggur tún þrá
anna víf lönd minnast
sumar alda bók sól
land heimur hár lóa

Prentvæn útgáfa af rímverkefni

 
Verkefni 2
Finndu sem flest samheiti við nokkur eftirfarandi orð.
Notaðu fyrst eigin orðaforða. Berðu síðan saman við orðasafn bekkjarfélaganna. Flettu að lokum upp í Samheitaorðabókinni til að bæta við orðasafnið. Hafðu í huga að sú bók er langt frá því að vera tæmandi orðasafn.
 
 
hestur hópur heiðarlegur mistakast
karlmaður kasta hávaði myndarlegur
ganga (so.) ekkert heimskingi oft
hraustur góður hreykinn ofdrykkjumaður
mjög óttast illa öskureiður
rola frægur illmenni dapur

Prentvæn útgáfa af samheitaverkefni
Önnur útgáfa af sama verkefni

 
Verkefni 3
Finndu allt það sem hægt er að gera við vatn. Hér má til dæmis hafa í huga:
  • Vatn sem fast efni, fljótandi, loft ...?
  • Vatn er lífsnauðsyn
  • Skemmtun af vatni
  • Hættur
  • Kostir og gallar
  • Til dæmis er hægt að drekka vatnið, baða sig í því, sprauta því á náungann ...
    Þetta á sumsé að verða langur listi og markmiðið að finna sem allra flesta möguleika.

    Flokkaðu síðan hugmyndirnar og settu upp hugmyndavef til hægðarauka.
     

    Verkefni 4
    Bættu hugmyndum við eftirfarandi lista.
    Taktu afstöðu til viðfangsefnisins (með eða á móti því að íslenskan eigi rétt á sér), flokkaðu hugmyndirnar og raðaðu þeim í listann þannig að hægt sé að skrifa blaðagrein um efnið út frá honum. Athugaðu fyrirmyndina bls. 19 í Hagnýtum skrifum..

    Á íslenskan rétt á sér?

  • Fáir tala íslensku miðað við önnur tungumál
  • Íslenskan er erfitt tungumál
  • Þjóðernið er í hættu ef við tölum ekki íslensku
  • Gaman er að tala mál sem fáir kunna
  • Dýrt að kenna íslensku
  • Enska er heimsmálið og því best að leggja áherslu á hana
  • Íslensk menning er nátengd íslenskri tungu
  • Íslenska er gagnslaus í erlendum samskiptum
  • Bókmenntaarfurinn er það merkilegasta sem við eigum sameiginlegt
  • Íslenskan er hvort sem er að deyja út
  • Enskan er ekki það heimsmál sem sumir telja

  • Verkefni 5
    Búðu til hugmyndavef um eitt eftirfarandi efna. Hafðu vefinn á bls. 19 til hliðsjónar.

  • Veturinn, kostir og gallar
  • Bílar, kostir og gallar
  • Áfengi, kostir og gallar
  • Ástin
  • Evrópusöngvakeppnin
  • Uppeldi
  • Prentvæn útgáfa af hugmyndavef

    Verkefni 6
    Rifjaðu upp það sem sagt er um hraðritun (bls. 17). Safnaðu hugmyndum með þessari aðferð um eitt efnanna hér á eftir:

  • "Ég árið 2020."
  • "Draumastarfið mitt."
  • "Ef ég fengi stóra vinninginn ..."
  • "Það sem ég vildi breyta."

  • Verkefnabanki við Hagnýt skrif   © Gísli Skúlason / Mál og menning 2003