|
|
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 59-90 (59-74).
Skráningareyðublað (Powerpoint)
Verkefni 1
Skráðu allar námsbækur þínar þessa önnina í heimildaskrá. Hafðu í huga fáein grundvallaratriði sem oft vilja gleymast:Verkefni 2Stafrófsröð Undirstrikun eða skáletrun Íslenskt eða erlent rit (fornafn eða eftirnafn fyrst?) Greinarmerki Röð efnisatriða
Lesefni: Athugaðu sérstaklega kaflann Notkun heimilda bls. 62-64 (61-63).Taktu saman stutta dagskrá um þekkt skáld. Veldu 3 dæmigerð ljóð eftir skáldið til að sýna einkenni og breidd verka þess. Leitaðu upplýsinga í Skáldatali, Alfræðiorðabókinni, bókmenntasögu, á netinu og í formála að ljóðasafni sé þess kostur. Kappkostaðu að nota einungis upplýsingar sem koma efninu við.
Verkefni 3
Eyðublað fyrir verkefnið
Settu fram nokkrar spurningar sem þú vilt fá svör við. Spurningarnar þurfa að vera þess eðlis að líklegt sé að svör finnist við þeim í tiltækum heimildum. Skráðu jafnóðum svörin og tilvísanir til heimilda.
Verkefni 4
Undirbúðu fyrirlestur um land eða landshluta. Efnið á að nýtast ókunnugum sem ætla að heimsækja viðkomandi svæði sem ferðamenn. Aflaðu upplýsinga á bókasafni. Notaðu eingöngu handbækur og alfræðirit. Fyrirlesturinn á að setja upp eins og glósur. Flutningurinn á að byggjast á lykilorðum en ekki samfelldum texta. Það þýðir að þú þarft að vita töluvert um efnið þó orðin á blaðinu séu ekki mörg.10 lykilorð sem samsvara kaflaskiptingu (t.d. "Stærð og lega", "Mannlíf", "Saga", ...) Hámark 10 orð við hvert lykilorð til minnis Heimildaskrá
Verkefnabanki við Hagnýt skrif © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2005