Glósur
Lesefni: Hagnýt skrif, Glósur bls. 112-113 (95-96).
Verkefni 1
Lestu kaflann um röksemdir í Hagnýtum skrifum (bls. 41-46). Að því loknu getur þú skrifað glósur út frá lykilorðunum sem hér fara á eftir.
Glósuverkefni Hagnýt skrif: Röksemdir (bls. 41-46), minnisatriði
Rökræða og 
rifrildi 
 
Vísindi og 
sannanir 
Notkun dæma 

 

Forsendur 

 

Ályktanir 
 
 
Ífólgnar 
forsendur 
Hvað þarf að 
varast? 
Nokkrar 
rökleysur 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Verkefni 2
Lesefni til viðbótar: Hagnýt skrif bls. 35-36, Hlutlægni og huglægni, og 118-120 (101-103), Lýsingar.

Nú áttu að undirbúa fyrirlestur um uppáhalds hlutinn þinn. Þú skalt nota sams konar glósuform og í verkefninu hér að ofan. Þú þarft að nota lykilorð og við hvert þeirra má skrifa að hámarki 5 orð til minnis við útskýringar. Lykilorðin eru:

  • Ávarp, hverju ætla ég að lýsa?
  • Stærð og þyngd
  • Lögun
  • Efni og samsetning
  • Litur og áferð
  • Notkun
  • Hvernig tilkominn
  • Saga tengd hlutnum
  • Hvers vegna kær
  • Lokaorð
  • Verkefni 3
    Veldu erfiðan leskafla úr einhverri kennslubók. Byrjaðu á því að skima kaflann, þ.e. fletta í gegnum hann til að fá hugmynd um efni hans. Lestu hann síðan vel og merktu við aðalatriðin. Skrifaðu lykilorð úr hverri efnisgrein á spássíu. Settu síðan upp glósuform eins og notað er í verkefni 1. Skrifaðu lykilorðin á spássíuna og stuttar skýringar við hvert þeirra, hámark 3-5 línur.

    Verkefni 4
    Búðu þér til lista yfir helstu skammstafanir, tákn og aðrar styttingar sem þú telur þig geta notað þegar þú skrifar glósur. Nokkur dæmi um tákn eru í rammanum bls. 113 (96) og lista yfir helstu skammstafanir má finna í orðabókum.

    Verkefni 5
    Æfðu þig markvisst í að fylgja glósuferlinu bls. 112 (95). Hafðu í huga að í kennslustundum er oft ekki nóg að skrifa það sem kennarar setja á töflu eða glæru. Oftast eru þar einungis aðalatriðin. Ýmsar útskýringar sem fylgja í kennslunni eru þá ómissandi til að glósurnar skiljist síðar meir.


    Verkefnabanki við Hagnýt skrif   © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2003