Fréttir
 
Lesefni: Hagnýt skrif bls. 106-109 (89-92).

Gátlisti (fyrir frétt tengda bókmenntum)
Verkefni 1
Veldu stutta frétt úr dagblaði. Athugaðu hvort fylgt sé þeim reglum sem lýst er í kennslubókinni. Skráðu á spássíu fréttarinnar hvar hvert af hv-orðunum 7 í rammanum bls. 106 (89) er afgreitt.

Verkefni 2
Semdu frétt um alþekkt tól eða tækni eins og um byltingarkennda nýjung væri að ræða.

  • Byrjaðu á að safna hugmyndum á seðla.
  • Fylgdu nákvæmlega hv-orðunum þegar þú ákveður byggingu fréttarinnar.
  • Semdu góða fyrirsögn.
  • Lestu prófarkir og vantaðu lokafrágang.
  • Settu fréttina upp í tvo dálka svo hún líkist sem mest eiginlegri blaðafrétt.
  • Lengd: 1/2 - 1 bls.
  • Verkefni 3
    Tvö sýnidæmi á glæru
    Sýndu fram á að eftirfarandi frétt fylgi ekki hefðbundinni byggingu blaðafrétta. Notaðu hv-orðin til að rökstyðja þá niðurstöðu. Rifjaðu upp kaflann um viðtakendur (bls. 20-22). Fyrir hverja er þessi frétt skrifuð?
    Búfé ferst í skurðum
    Syðra-Langholti
    Á FIMMTUDAG og föstudag gerði hér stífa skafhríð af norðri og skóf víða í harða skafla. Skurðir fylltust af snjó og sauðfé hraktist undan veðrinu og lenti í skurðum. Ekki er þetta þó talið vera í miklum mæli, en fé hefur fundist dautt í skurðum og á nokkrum bæjum vantar dálítið af kindum. Steinar Halldórsson í Auðsholti vantar t.d. átta ær sem hann telur hafa lent undir fönn í skurðum. Þá hrakti þrjár ær frá Auðsholti undan veðrinu í Hvítá.
    Vegna tíðarfarsins hafa flestir bændur tekið sauðfé á hús sem er óvenju snemma hausts enda eru takmarkaðir hagar. 
       Þekktur, hátt verðlaunaður stóðhestur, Kolskeggur frá Kjarnholtum, fórst og í skurði en það mun hafa verið eftir að bylinn gerði og er talið að hann hafi runnið í hálku í skurðinn. En það eru líka jákvæðar fréttir af búfé, því Tungnamenn sóttu á laugardag tvílembu í Þjófadali inni á Kili eftir ábendingu frá rjúpnaskyttum.
    Verkefni 4
    Semdu nýja frétt byggða á þeirri hér að ofan. Fyrst þarf að ákveða hver séu mestu tíðindin í fréttinni og leggja síðan mesta áherslu á þau. Hér skiptir máli hverjir eiga að lesa fréttina (sbr. viðtakendur bls. 20-22). Fylgdu hv-orðunum vel. Hugsast getur að þú komist upp með að sleppa einhverju úr upprunalegu fréttinni.


    Verkefnabanki við Hagnýt skrif   © Gísli Skúlason / Mál og menning, 2003