Verkefnabanki
þessi er einkum ætlaður framhaldsskólanemum og
kennurum
sem nota bókina Hagnýt
skrif.
Flest eru verkefnin sniðin að þörfum nemenda
á
fyrsta námsári framhaldsskólans (103-203 eða
102-212).
Þar eru þjálfuð ýmis
undirstöðuatriði
og vinnubrögð sem nýtast síðar í
námi
og starfi.
Í
efri
áföngum má reikna með að bókin
nýtist
fremur sem handbók en eiginlegt kennsluefni og
því
minni þörf fyrir sérstök verkefni fyrir
þann
nemendahóp. Þó eru hér einnig
viðfangsefni
sem kalla má fullboðleg fyrir stúdentsefni, til
dæmis
þau sem lúta að bókmenntaritgerðum og
heimildavinnu.
Vonandi
verða
fleiri verkefni lögð inn í þennan banka í
tímans rás. Ábendingar um lagfæringar
og viðbætur eru vel þegnar, hvort sem þær
snerta
bók eða banka.