|
Gísli Skúlason
Drög að heimasíðu
Maður
er nefndur Gísli, Skúlason, Magnússonar, Eiríkssonar,
Magnússonar af Skeiðum. Í móðurætt er Skúli
þessi kominn af konunglegum sauðaþjófum og morðingjum.
Móðir Gísla er Guðbjörg, Gísladóttir,
Illugasonar, Jóhannssonar úr Bárðardal. Guðrún
móðir Guðbjargar var frá Túni í Flóa,
en þangað rekja einnig ættir sínar þeir öðlingar
Árni Blandon og Jón Özur Snorrason, samkennarar Gísla
við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Gísli er dagfarsprúður
hversdags en getur verið skapstyggur mjög ef óvarlega er farið
að honum. Er fólki ráðlagt að hafa sig hægt
í návist hans ef það vill ekki hafa verra af.
|