Um Kórinn:

Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands var stofnaður 21. febrúar 1983 og hefur starfað óslitið síðan, en slíkt er fátítt meðal framhaldsskólakóra. Stjórnandi kórsins frá upphafi og út vorið 2000 var Jón Ingi Sigurmundsson við mikinn orðstír. Róbert A. Darling tók þá við stjórninni og stjórnaði farsællega í fjóra vetur og út vorið 2004. Stefán Þorleifsson er nú tekinn við stjórninni frá haustinu 2004. Allir eru þeir stórmógúlar tónlistar á Suðurlandi, Jón Ingi frá Selfossi en hinir tveir úr Þorlákshöfn.
Kórinn hefur alla tíð verið fastur punktur í skólastarfinu, syngur ævinlega við brautskráningar og aðrar hátíðir í skólanum, s.s. dag íslenzkrar tungu, heldur vísnakvöld og tónleika, ásamt fleiri viðfangsefnum, t.a.m. tók kórinn að sér mót framhaldsskólakóra vorið 2004, þar sem mættu í kringum 2300 manns úr 11 kórum auk áhugasamra.
Kórinn fór í sína fyrstu tónleikaferð til útlanda árið 1986 til Danmerkur og Svíþjóðar. Þrisvar hefur síðan verið farið til Þýskalands, þ.e. 1992, 1996 og 1999.
Vorið 2003 hélt kórinn svo í tónleikaferð til Ítalíu með viðkomu í Þýskalandi og Austurríki, þannig að enn einu sinni hefur kórinn lagt leið sína til Þýskalands. Vorið 2006 fór síðan kórinn í ævintýraferð til Skotlands, með viðdvöl í Færeyjum, Hjaltlandseyjum og Orkneyjum.
Þá hefur það tíðkazt að kórinn fari stutta ferð í aðra landshluta á vorin, og hafa undanfarin ár verið kíkt á Snæfellsnesið, Eyjafjörðinn, Suð-Austurland og fleiri áhugaverða staði.
Hljóðsnælda með söng kórsins kom út 1986 og síðar komu út geisladiskarnir Vinaspegill (1992) og Cum decore (1999).



Myndir:
mynd kór

jum.