| |
Eldri Fréttir
| 04.06.2006 |
Takk fyrir æðislega Ferð |
|
Núna er kórinn kominn heim frá útlandinu, og koma myndir og ferðasögur inná síðuna vonandi í vikunni
|
| - Sævar |
| 21.05.2006 |
Tónleikar í kvöld |
|
Núna er þetta heldur betur farið að styttast. í kvöld verða Kveðjutónleikar okkar með Kirkjukór Selfosskirkju á þeirra heimavelli (Selfoss Kirkju). tónleikarnir byrja stundvíslega kl 20:02 og eigum við að mæta kl 19:00. Síðan tekur bara við að hver og einn þarf að pakka niður í sína tösku, því að þegar þetta er skrifað eru einungis 44klst og 20mín þar til lagt verður í hann frá FSu. Er ekki kominn ferðahugur í mannskapinn?
|
| - Sævar |
|
Í kvöld verður hin sívinsæla júróvísjón keppni Evrópskra sjónvarpstöðva.. því miður er enginn kórfélagi að taka þátt í þetta skipti, en vonandi verður bætt úr því á næsta ári.. :) og svona meðan ég man. takk fyrir sönginn á útskriftinni í gær.. þetta gekk mun betur en svartsýnustu menn þorðu að vona ;) með öðrum orðum, þá var þetta mjög fínt, en við getum alltaf á okkur blómum bætt og það voru ýmis smá atriði sem við getum lagað, t.d. tímaskynið hjá þeim sem mættu 13:58 ofl.. en heilt yfir var þetta mjög fínt
|
| - Sævar |
| 30.04.2006 |
Síðasti dagur apríl |
|
Á morgun verður ekki hægt að tala um það að við séum að fara út í vor eða í næsta mánuði.. því á morgun verður kominn upp sá mánuður sem við leggjum af stað í hina langþráðu ferð..
|
| - Sævar |
|
Nú fer heldur betur að líða að brottför og ferðaáætlunin að skýrast, þó svo að ekki sé allt orðið niðurnjörvað ennþá. Eins og flestir vita þá verður lagt af stað frá Fsu Þriðjudaginn 23. maí klukkan 13:00 stundvíslega (mæting 12:30). haldnir verða "lopapeystónleikar" að Svínafelli þar sem Flosi bjó, en Steina býr nú og verður jafnframt gist þar. Brottför með Norrænu verður síðan Miðvikudaginn 24. kl. 18:00. Lent verður síðan í Keflavík kl 12:25 föstudaginn 2. júní. Dagskrána í heild er hægt að sjá hér að neðan..
Dagskrá-Skotland
|
| - Sævar |
| 21.04.2006 |
Vel heppnaðir tónleikar og Bingó |
|
Tónleikarnir í gær þóttu vel heppnaðir og fengum við hrós fyrir, þó að ýmislegt megi betur fara.. t.d. voru nótur á gólfinu og vatnsflöskur ofl, en þetta er allt á réttri leið.. Að sögn Stefáns vorum við sönglega betri en á Akureyri, og á Akureyri vorum við betri en á vísnakvöldinu á vorönn, og á því vísnakvöldi vorum við betri en í haust, svo þetta stefnir allt í rétta átt, og því verður fróðlegt að sjá hvernig við stöndum eftir síðustu tónleikana úti í Skotlandi.
|
| - Sævar |
| 12.04.2006 |
Með sól í hjarta! |
|
Það verður létt og skemmtilegt andrúmsloft í Fjölbrautaskóla Suðurlands á sumardaginn fyrsta þegar kór skólans heldur árlega vortónleika sína. Þetta er nánar tiltekið fimmtudaginn 20. apríl og hefjast tónleikarnir kl. 16:00. Stjórnandi kórs FSu er Stefán Þorleifsson.
Sérstakir gestir á tónleikunum verða kór Kvennaskólans í Reykjavík undir stjórn Margrétar Helgu Hjartardóttur og kór Borgarholtsskóla í Grafarvogi, en honum stjórnar Guðlaugur Viktorsson.
Það verður “kátt í höllinni” þegar þetta unga og káta fólk hittist til að fagna sumri og syngja saman. Efnisskráin er fjölbreytt, allt frá aldagömlum stemmum yfir í Elton John!
Kórarnir syngja saman en einnig hver fyrir sig og verður skemmtilegt á að hlýða því hver kór hefur sinn stíl. Það er óhætt að hvetja fólk til að leggja leið sína í Fjölbrautaskólann á sumardaginn fyrsta til að fagna sumri með ungu, syngjandi fólki.
Þá má geta þess að vetrarstarfi kórsins er síður en svo lokið með þessum tónleikum. Sungið verður við útskrift í skólanum í maí en að því búnu haldið af landi brott í mikla reisu til Orkneyja og Skotlands með viðkomu í Færeyjum og á Hjaltlandseyjum. Fjáraflanir fyrir ferðina og annar undirbúningur er í fullum gangi og ríkir mikil tilhlökkun til ferðarinnar. Af því tilefni heldur kórinn bingó í skólanum sama dag, sumardaginn fyrsta kl. 20:00. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!
|
| - Sævar |
|
þar sem nú eru einungis 56 dagar þar til við leggjum af stað út, þá hefur Stefán ákveðið að hafa aukaæfingar. miðvikudaginn 29/3 kl 11:20 og fimtudaginn 30/3 kl 13:10 og að sjálfsögðu er venjubundin æfing kl 16:00 á fimtudaginn..
|
| - Sævar |
|
okkur hefur verið boðið að leika í auglýsingu fyrir SagaFilm um helgina. þetta er skemtileg og vonandi ábatasöm fjáröflun. þeir sem hafa áhuga skrái sig inná skrifstofu hjá Halldóru
|
| - Sævar |
| 15.03.2006 |
Vesen með síðuna |
|
Síðan lá tímabundið niður vegna þess að svæðið sem síðan er vistuð á hjá FSu var eytt útaf gagnagrunninum, en núna ætti hún að vera orðin góð
|
| - Sævar |
|
Jæja.. nú er komið að því. Á föstudaginn verður kórinn með tónlistarmaraþon sem er hluti af fjáröflun fyrir Skotlandsferðina. markmiðið er að syngja og spila lifandi tónlist í 24klst. í kvöld og á morgun verður gengið í hús og safnað áheitum. fólk heitir á okkur ákveðinni upphæð og ef okkur tekst að vera með lifandi tónlist í 24klst þá fáum við þá upphæð. Þetta var gert þegar það var farið til Ítalíu árið 2003 og tókst það mjög vel, og var þetta ein af þeim fjáröflunum sem gaf mest af sér. því þurfum við að taka á honum stóra okkar til að fá inn sem mestan pening svo við komumst til Skotlands í maí.
Allar nánari upplýsingar gefur Halldóra á netfanginu halldora@fsu.is
|
| - Sævar |
| 06.03.2006 |
Takk fyrir helgina |
|
Eins og margir vita, þá hélt kórinn norður á land síðastliðin föstudag, og var ferðinni heitið á höfuðstað norðurlands, Akureyri þar sem fram fór kóramót framhaldsskólakóra. Lagt var af stað kl 10:00 frá FSu. Þaðan var haldið beina leið í Grafarvoginn þar sem kór Borgarholtskóla var tekinn uppí rútuna. numið var staðar í Borgarnesi
þar sem keyptur var harðfiskur og annað til að narta í á leiðinni. þvínæst var ferðinni heitið á Blönduós þar sem sór kóræfing var. Þar hittum við Kóra frá Flensborgarskólanum og Kvennaskólanum. Eftir stutta æfingu í Blönduóskirkju var haldið áfram á Akureyri. þar sem við komum okkur fyrir í verkmenntaskólanum. síðan var farið og borðaður ljúffengt lamb á Hótel KEA og síðan skiptist hópurinn upp, sumir fóru heim í skólann, meðan aðrir fóru að leita af sjónvarpi sem sýndi Idolið. Laugardagurinn var síðan tekinn snemma. farið var í morgunmat og síðan fór rútan með okkur í Glerárkirkju þar sem kóramótið skildi fara fram. þar voru æfð sameiginlegu lögin og var því lokiðn um hádegisbilið. þá fengum við súpu og brauð, og hver kór æfði sitt eigið prógramm. klukkan 16 byrjuðu svo tónleikarnir. hver kór flutti 2-6 lög, og var síðan endað á því að allir kórarnir sameinuðust í tæplega 300 manna kór sem söng saman 5 lög. þegar tónleikarnir voru búnir var tímabært að halda út í VMA þar sem boðið var upp á Pizzu fyrir allt liðið. síðan tók við kvöldvaka, þar sem hver kór kom með skemtiatriði. síðan var háttatími fljótlega uppúr því. á Sunnudeginum var ræs uppúr 8, þá tók við tiltekt og var allt dótið komið út í rútuna klukkan hálf tíu. síðan keyrði rútan okkur niður í Akureyrarkirkju þar sem við áttum að syngja í messu klukkan 11. frá 10-11 æfðum við síðan sameiginlegu lögin, og renndum í gegnum sálmana sem sungnir yrðu í messunni. eftir að messunni lauk var tekinn klukkutími í mat og síðan lagt af stað suður. mörgum klukkutímum síðar (og 2 stoppum, í Varmahlíð og Borgarnesi) var síðan lent í Grafarvogi þar sem við skiluðum Borgókrökkunum. Á leiðinni yfir heiðina fór Stefán svo yfir ferðina og hvað betur hefði mátt fara. við komumst að því að sönglega séð stöndum við alls ekki svo illa, því flestir kórstjórarnir hrósuðu okkur fyrir "hreint sound" og hvað við féllum lítið í tónhæð. en betur má ef duga skal. Nú er bara um að gera að halda áfram á þessum nótum, stefna á það að verða enn betri en við erum, því við ætlum að láta muna eftir okkur þegar við förum út. |
| - Sævar |
| 26.02.2006 |
Sælt veri fólkið |
|
Munið vísnakvöld kórsins sem
verður haldið á bolludaginn, mánudagskvöldið 27. febrúar kl. 20:00 í sal skólans. Kórinn ætlar þar að syngja kátar vísur og kvæði, ásamt öðru þéttara og þyngra.
En það er líka von á góðum gestum. Sigurvegarar úr glæsilegri söngkeppni Grunnskólans á Hellu, Hvolsskóla og Laugalandsskóla sem haldin var á dögunum ætla að mæta, en hópurinn er í söng- og tónlistarvali hjá Eyrúnu Jónasdóttur í Laugalandsskóla.
Fleiri Rangæingar koma við sögu. Þrjár stúlkur sem vöktu athygli fyrir vandaðan flutning í söngkeppni NFSu í haust ætla að koma og slá í gegn að eigin sögn; ein úr Rangárþingi ytra en hinar tvær úr Þorlákshöfn. Þetta eru þær Arna Lára, Klara og Hekla. Tveir Þorlákshafnarbúar til viðbótar, þær Aðalbjörg og Rakel ætla líka að troða upp og gera það eflaust með glæsibrag eins og þeirra er vandi.
Halldór Unnar Ómarsson heitir fyrrverandi félagi í kór FSu, en hann nemur söng hjá Alínu Dubek í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þessi ágæti tenór ætlar að líta inn á vísnakvöldið. Og fleiri gestir gætu komið, það er nefnilega aldrei að vita hvað er brallað á vísnakvöldi!
Aðgangur er ókeypis, en bollur og fleira góðgæti verður selt í hléi.
Það væri kórfélögum sönn ánægja að sjá ykkur sem flest, að sjá hvað fyrrverandi, núverandi og væntanlegir nemendur eru að bralla.
|
| - Stjórnin |
| 10.02.2006 |
Hverjir ætla með?? |
|
Jæja. nú hefur fresturinn til að borga staðfestingargjaldið, og það eru greinilega bara 16 sem ætla að koma með.. þeir sem eiga eftir að borga, þurfa aðeins að hugsa sinn gang |
| - Stjórnin |
|
Það eru komnar inn nýjar myndir frá Heimalandi, bæði frá því á þessari önn, og líka frá síðustu önn.. |
| - Sævar |
|
Við viljum minna ykkur á 10-10
eða þ.e.a.s 10.000kr staðfestingargjald fyrir 10. febrúar |
| - Stjórnin |
|
Nú er búið að vinna hluta af upptökunum sem voru teknar upp í Heimalandi, og er ekki hægt að neita því að útkomana sé töluvert betri heldur en upptökurnar þegar Stebbi var nýbyrjaður með okkur. En nú höfum við a.m.k. fengið að heyra hvernig við hljómum, svo þá getum við reynt að bæta okkur áður en við "meikum það" í útlandinu. |
| - Sævar |
|
Samkvæmt mínum útreikningum, þá er orðið vel meira en mánuður síðan síðasta færsla kom hérna inná.. það er náttúrulega ekkert annað en hreinasti skandall. Það er nú helst að frétta að núna um helgina verða æfingabúðir uppí Heimalandi. Mæting er kl 15:00 í sal FSu þar sem að við byrjum æfingu, og verðum eitthvað að skarka í nokkrum lögum. síðan um kvöldmatarleytið verður sest upp í rútu og haldið áleiðis á Hvolsvöll þar sem snæddur verður sameiginlegur kvöldverður. þegar allir eru orðnir saddir, verður haldið aftur af stað, og lennt í fyrstu umferð Bandýkeppninnar 2006 í Heimalandi undir Eyjafjöllum.
Heyrst hefur að Rauða bandýliðið hafi verið að þróa leynivopn sem á að afhjúpa um helgina, en Gula liðið kemur fullt sjálfstrausts til keppni, enda núverandi meisari, og hefur æft stíft í jólafríinu. |
| - Sævar |
|
Nú fer senn að líða að lokum þessa árs, og því tímabært að fara að dusta rykið af jólafötunum. Það er allt að gerast í útlandsmálum, búið að bóka flugið heim, svo nú verður ekki aftur snúið. Þó að dagskráin er orðin tómleg fram að jólum, þá er enn eftir tvö atriði:
Annarsvegar æfingin fimtudaginn 15.des kl 16:00-17:00 (prófsýningardagur), og svo hinsvegar Útskriftin í FSu sem er mikilvægasta atriði hverrar annar. Mæting er kl 12:00 og auðvita á ekki að þurfa að taka það fram að við syngjum í okkar fínasta pússi. |
| - Sævar |
|
Allright.. Núna eru prófin byrjuð og önnin að líða undir lok. Samt sem áður er mjög nauðsynlegt að taka þátt í þessum 3 viðburðum sem eru eftir, því þá sést úr hverju þessi kór er. auðvita er ég að tala um Verðlaunaafhendinguna í FSu 9. des, Aðventutónleikana 11. des og svo auðvita útskriftin 17. des.
3 mjög mikilvægir tónleikar á 8 dögum.
Svo vonum við bara að við náum að heilla einhvern ríkan tónleikagest uppúr skónum sem væri til í að taka þátt í ferðakostnaði með okkur.. því eins og margir vita þá ætlum við sko heldur betur til Skotlands næsta vor..
|
| - Sævar |
| 24.11.2005 |
Fleiri Myndir! |
|
Jæja Núna eru komnar enn fleiri myndir, sem virka meira að segja...
En þið hafið kannski tekið eftir því að það eru ekki komnar inn neinar myndir frá síðustu kórbúðum, en það er einfaldlega vegna þess að ég hef ekki ennþá fengið neinar myndir frá seinustu kórbúðum.
Myndirnar
|
| - Sævar |
| 23.11.2005 |
Prógrammið fram að jólum! |
|
Fim. 24. nóv.: Æfing í sal kl. 16:00
Fim. 29. nóv.: Æfing í sal kl. 16:00
Fös. 2. des.: Æfing kl. 11:30 - 13:00
Fös. 9. des.: Mæting kl. 12:30 Fjáröflunarsöngur í FSu kl. 15:00 - í búningum !
Sun. 11. des.: Aðventutónleikar í Selfosskirkju - í búningum !
Fim. 15. des.: Æfing kl. 16:00 - 17:00
Lau. 17. des.: Mæting kl. 12:00 Útskriftarathöfn í FSu kl. 14:00 - í búningum !
Jólin - í jólafötunum !
|
| - Jólakötturinn |
|
Jæja. loksins komu inn nýjar myndir. Núna eru komnar nokkrar myndir frá vísnakvöldinu.
|
| - Sævar |
|
Í dag, föstudaginn 18. nóvember á hinu herrans ári 2005, á elskulegur stjórnandi okkar Stefán Þorleifsson afmæli. Vil ég fyrir hönd kórsins óska honum innilega til hamingju með "25" ára afmælisdaginn..
|
| - Sævar |
| 16.11.2005 |
Dagur íslenskrar tungu |
|
Þennan dag fyrir 198 árum fæddist Jónas Hallgrímsson. Jónas var afkastamikið skáld og samdi meðal annars "Grasaferð" sem talin er vera fyrsta smásagan sem kom út á íslensku, einnig samdi hann "stúlkan í turninum" sem var fyrsta íslenska hrollvekjan. Jónas var mikill ættjarðarmaður og orti mikið af fallegum ljóðum um Ísland. Jónas var einn svokallaðra Fjölnismanna sem börðust mikið fyrir verndun íslenskrar tungu á 19. Öld. Síðar var ákveðið að gera fæðingardag Jónasar (16/11) að degi íslenskrar tungu.
|
| - Sævar |
|
"Ragga, ert þú ekki Tenór??"
|
| - Ágústa |
| 26.10.2005 |
Aðventutónleikar í Selfosskirkju |
|
Sunnudaginn 11. desember verður komin jólastemming í alla. Einmitt þá tekur kór FSu þátt í hátíðlegum aðventutónleikum í Selfosskirkju klukkan 15:00 síðdegis. Kórinn syngur tvö eða þrjú lög og heillar troðfulla kirkju af fólki upp úr skónum með fallegum söng og framkomu. Þarna er líka gaman að heyra hvernig aðrir kórar syngja, hlusta á blásarasveit og lúðrasveit og fleira skemmtilegt. En fyrst er það söngur í skólanum föstudaginn 4. nóvember. Nánar um það fljótlega.
|
| - Sævar |
|
Þeir sem eiga myndir úr kórbúðunum, vinsamlegast komið þeim til Sævars á CD formi, svo það sé hægt að skella þeim á síðuna.
Ps. Þið vitið að það er frí á æfingunni á morgun (20/10)
|
| - Sævar |
|
Jæja, þá er fyrstu eiginlegu uppákomu vetrarins lokið, og tókst hún með miklum ágætum, þrátt fyrir smávægileg textavandræði í erlendum sálmum. En heilt yfir var þetta vel að verki staðið, engar kvartanir hafa komið, og allir ánægðir.
Takk Fyrir. Þið stóðuð ykkur vel.
|
| - Sævar |
|
Eins og áður hefur verið frá greint, þá er vísnakvöld kórs FSu fimtudagskvöldið 13.10.2005. Herlegheitin byrja kl 20:00 stundvíslega, og kennir þar ýmissa grasa. Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna Kór FSu sem syngur vel valin lög undir styrkri stjórn Stefáns Þorleifssonar. Úr Flóanum kemur leikhópur og sýnir brot úr leikritinu Stútungasögu, sem hlotið hefur mikið lof gagnrýnenda. Tríó karlaradda úr reykjavík syngur nokkur lög. Berglind Magnúsdóttir syngur einhver lög og að lokum spilar hljómsveitin Ground Floor djazzrock og ýmislegt góðgæti.
Ekki má síðan gleyma aðalatriðinu. Í hléi verða seldar dýrindis veitingar sem kosta léttvæga upphæð.
|
| - Sævar |
|
Jæja. Síðan er loksins komin á alnetið. Tekið skal þó fram að hún er ekki fullunnin, svo enn eru nokkrir vankantar hér og þar, aðallega þar.
En að öllu gamni slepptu þá er síðan orðin skoðunarhæf! |
| - Sævar |
|
Vísnakvöld er skemmtikvöld með fullt af tónlist og öðrum skemmtilegheitum. Kórinn syngur hitt og þetta og veður úr einu í annað í lagavali. Stútungar úr Flóanum gera innrás og sýna brot úr leikritinu Stútungasögu. Bassa-bariton tríó ungra manna úr Kvosinni í Reykjavík syngur, hljómsveitin Groundfloor leikur listir sínar og Berglind Magnúsdóttir syngur.
Kostar ekkert inn en dýrðlegar kræsingar seldar í hléinu. |
| - Sævar |
| 29.09.2005 |
Vefsíðan er enn í vinnslu! |
|
Tekið skal fram að síðan er enn í fullri vinnslu, og því ýmsar gloppur í henni og tenglar sem ekki virka.. Vill ég biðjast velvirðingar á því, og vona að þið sýnið smá þolinmæði. |
| - Sævar |
| 28.09.2005 |
Vefsíðan er í vinnslu! |
|
Welkomin á heimasíðuna sem er enn í vinnslu.... vinsamlegast andið hratt og stutt því síðan verður tilbúin eftir smá....Ef þið hafið nú þegar andað hratt og stutt, haldiði því þá bara aðeins áfram |
| - Sævar |
| 27.09.2005 |
Vefsíðan er í vinnslu! |
|
Welkomin á heimasíðuna sem er enn í vinnslu.... vinsamlegast andið hratt og stutt því síðan verður tilbúin eftir smá....
|
| - Sævar |
|
Áhugaverðir tenglar:
» FSu
» NFSu
» Söngtextar Davíðs
» Kór Flensborg
» Kór FÁ
»Tónsmiðja Stefáns
|