Velkomin á heimasíðu Kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands.



12.01 2007
Vísnakvöld

Sælir góðir hálsar! Hvað er vísnakvöld? Nú er eitt slíkt að nálgast, það verður haldið mánudagskvöldið 19. febrúar kl. 20:00 í FSu - og mikið rétt - það er á bolludaginn!

Kór FSu hefur haldið svona skemmtikvöld (sem kölluð eru vísnakvöld) nærri alveg frá stofnun, eða í rúmlega 20 ár. Á vísnakvöldi syngur kórinn heilmikið en býður líka fleira fólki að koma og syngja, spila, lesa upp og fleira. Úr þessu verður skemmtidagskrá sem fólk á öllum aldri getur vonandi haft gaman af. Og nú erum við að undirbúa þetta.

Þegar dagurinn nálgast þarf kórfólk að undirbúa alla hluti vel. Allir kórfélagar baka eða leggja eitthvert góðgæti til samkomunnar, því við seljum kaffi og meðlæti (auk sjoppuvarnings) í hléinu. Þannig fáum við tekjur sem renna í ferðasjóð kórsins. Það verða áreiðanlega margir sem koma með bollur - en það geta líka verið brauðbollur með osti og hvað sem er. Þeir sem ekki geta bakað geta fengið hugmyndir hjá Halldóru um ýmislegt annað sem má koma með, t.d. salat, kex, ost, vínber eða sultu, ávaxtarétti og fleira og fleira.

Eftir skemmtunina þurfum við að ganga frá öllu aftur, þvo upp og gera allt klárt fyrir næsta skóladag. Eldri kórfélagar þekkja þetta, en nýir félgar ekki, sérstaklega vegna þess að við héldum ekki vísnakvöld á haustönninni, aldrei slíku vant. En það var af því að RENT-tónleikarnir komu í staðinn.

Með kveðju um góðan bolludag og vonsndi skemmtilegt vísnakvöld!

-Ég vil minna á það að það er komin gestabók á síðunna okkar, svo þið getið kvittað við komu ykkar :-)

- Jóna

 

01.02.2007
Skilaboð!

Ég vil byrja á því að þakka fyrir alveg ágætis kórbúðir sem að voru seinustu helgi og ég vil minna á ég tek endilega við myndum til að setja hérna inn á síðuna! þið verið bara að hafa samband við mig og láta mig fá myndirnar á cd og þá er vandamálið leist! Svo vil ég minnast á það að við verðum að vera dugleg að mæta á æfingar og vera dugleg að taka þátt í öllu kórstarfinu því annars verður ekkert gaman í vor. Við verðum að vera dugleg að safna pening í ferðasjóð, kannski er eitthver svo örlátur að hjálpa til og kannski setja nokkrar tómar ölflöskur í endurvinslu og koma með peninginn í henurnar á Halldóru, ekki veitti af fyrir svona stóran hóp. Vonandi verður bara gaman í vor og allir geta unnið saman því þetta snýst allt um það! Ég vil lika minna á það er vísna kvöld 19.febrúar og ég kem skilaboðum um það þegar að nær dregur!

 

- Jóna

 

05.01 2007
Gleðilegt árið!

Gleðilegt ár góðir kórfélagar og takk fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári. Það verður gaman á sjá framan í ykkur á mánudagsmorguninn, en eins og þið vitið er fyrsta æfing kl. 9:55 í salnum. Muðið svo að alltaf er hægt að kíkja á linkinn ,,Á döfinni" ef að þið eruð ekki viss um hvenær og hvar við erum að syngja í vetur og það er einginn afsökun að mæta EKKI. Það er mikilvægt að mæta vel og til dæmis algjörlega bráðnauðsynlegt og skylt að mæta í æfingabúðir!! Skrifið dagsetningarnar í dagbókina (eða í símann) og gangið úr skugga um að þið getið komið með.

Ekki fleira í bili, hlakka til að sjá ykkur!

- Jóna

 

23.des.2006
Jólin

Gleðileg jól allir kórfélagar. Hafið það sem allra best yfir jólinn og mætum svo hress og kát á nýju ári.

- Jóna

 

16.12.2006
Hellingur af skilaboðum

Jæja lömbin mín! Þá eru hér ýmis skilaboð fyrir lokasprettinn. Lesið vel og vandlega og lesið svo aftur.

* Búningar: Nú fara hátíðir í hönd. Á glæsilegum aðventutónleikum í Selfosskirkju >> sunnudagskvöldið 10. desember verður kórinn í sínu fínasta pússi. Einnig við hátíðlega brautskráningarathöfn í skólanum föstudaginn 22. desember. Þá vill skólinn skarta öllu sínu fegursta, og hvað er það annað en einmitt kórinn?! Vitna í kynningarbækling: "Þegar kórinn vill koma fram í sínu fínasta pússi klæðast kórfélagar samræmdum kórbúningum. Strákarnir fara í blátt vesti sem kórinn leggur til, en hvíta skyrtu, svartar buxur, svarta sokka og svarta skó leggja þeir til sjálfir. Stelpurnar fara í bláan kjól sem kórinn leggur til, en hvíta skyrtu eða ermalangan bol, svarta sokka og svarta skó leggja þær til sjálfar. Bláu kórfötin geyma kórfélagar en þau eru eign kórsins og ber kórfélögum að fara vel með fötin." Þið sem eruð með kórbúninga, athugið hvort þeir passa ekki ennþá og eru í góðu lagi. Allt á sínum stað. Talið annars við mig strax. Þið sem eru ekki með kórbúninga, komið sem allra fyrst til mín að máta slíka gripi.

* Skil á RENT-bókum og diskum: Bókasafnið vantar ennþá fullt af RENT-bókum og biður ykkur að skila STRAX. Einnig vildi ég gjarnan fá diskana aftur inn á skrifstofu.

*Æfingin á fimmtudaginn: Síðasta æfing á kennslutíma, næsta fimmtudag verður í Selfosskirkju. >> Mætið >> tilbúin í jólasyrpuna.

- Jóna

 

21.11.2006
Hæj hæj og hó hó

Jæja, long time no see!

Takk fyrir tónleikana sem að voru í 19-21 október sl eða fyrir mánuði síðan. Þið stóðuð ykkur með prýði. Núna erum við að æfa jólalögin og stútendalöginn svo að það er mikilvægt að mæta á æfingar svo að allir geta sungið með annars verður ekkert gaman. Skólin er senn á enda og jólaprófin fara að koma, það verða einhverjar æfingar á þeim tíma svo ALLIR fylgjast VEL með! Mundu svo ekki allir eftir því að velja kórinn á meðan valtímin stóð yfir svo að kórin verði ekki lítill og væskillegur? og endilega minnið vini ykkar á að koma í kórinn því að það verður gert eitthvað skemmtilegt í vor!

- Jóna

 

16.10.2006

Rokksöngleikjatónleikar!!!

Kór FSu og hljómsveitin These Days ásamt einsöngvurum ætla að flytja valda kafla úr

nokkrum söngleikjum, auk tónlistar eftir hljómsveitina sjálfa. Þetta er kraftmikil

og flott tónlist úr Rent,Chess, Hárinu og fleira gott.

Allir flytjendur eru nemendur við skólann nema hvað kynnirinn er kennari!

 

Tónleikarnir verða á eftirfarnadi stöðum:

 

Ráðhúsinu í Þorlákshöfn fimmtudaginn 19. október kl. 20:00

 

Hvolnum á Hvolsvelli föstudaginn 20. október kl. 20:00

 

FSu á Selfossi laugardaginn 21. október kl. 17:00

 

Aðgangseyrir aðeins 500 krónur.

Allir velkomnir!

 

 

 

ATH kórfélagar:

Kórinn leggur afstað kl. 17.00 frá skólanum og við dreifum okkur í bíla og greiðum bílstjóranum einhvern 100 kall fyrir bensíni. Klæðanðurinn er dökkar gallabuxur og ljós (hvítur þá og ekki með neina áberandi aulýsingu franan á) bolur að vild


- Jóna

07.10.2006
Myndir!

Góðan daginn góðir kórfélagar og aðrir lesendur. Búið er að setja inn myndir úr kórbúðunum hingað inn og svo þeir sem að voru með myndavél og vilja láta setja sínar myndir hingað inn þá bara endilega látið mig vita. Ég vil lika minna á það að við verðum að vera dugleg að mæta á æfingarnar sem að eftir eru til að fínpússa lögin okkar því að það styttist óðum í tónleika.

Sjáumst hress og kát á næstu æfingum :)

- Jóna

20.09.2006
"Nýjar" Fréttir

Loksins hefur einhver boðist til að sjá um þessa síðu, en framlag Sópransins í stjórn ætlar að sjá um það í vetur.
Þar sem ný önn er komin, þá er síðan í allsherjar yfirhalningu þessa dagana, en ætti að verða nothæf fljótlega.


- Sævar

31.08.2006
Ný Önn

Jæja. núna er hafin ný önn í kórnum og mikið er af nýjum félögum. næstu dagana verður síðan uppfærð almennilega, en fyrst vantar einhvern til þess að sjá um hana.. hver býður sig fram? ef einhver hefur áhuga þá skal hann gefa sig fram við stjórnina sem verður kosin í næstu viku.


- Sævar

01.08.2006
Engin ferðasaga og ekki neitt...

Ekki vannst tími til þess að setja inn ferðasöguna frá því í skotlandi, né heldur neinar myndir, en það er vegna þess að engar myndir skiluðu sér til ritstjórnar síðunnar.


- Sævar

Eldri fréttir:

Á döfinni:

19. feb.: Vísnakvöld í FSu

18. – 20. apríl: Danskur kór í heimsókn

19.apríl:
Vortónleikar


Myndir:
mynd kór

Áhugaverðir tenglar:
» FSu
» NFSu
» Söngtextar Davíðs
»
Kór Flensborg
» Kór FÁ
»Tónsmiðja Stefáns