|
|
|
Tauþrykksnámskeið á Kátum dögum |
|
|
|
Ellefu nemendur tóku þátt í tauþrykksnámskeiði Helgu og Lísu, kennara í þráðlist og myndlist, á Kátum dögum. Hver og einn hafði valið sér einlita boli fyrir námskeiðið. Síðan var farið í hugmyndavinnu og gerðar prufur með ýmsum litarefnum og áhöldum, t.d. penslum, stimplum eða skapalónum. Að síðustu var málað á bolinn, framan og jafnvel aftan á líka. Framkallað með hárþurrku og farið svo út í daginn í nýjum bol. |
Hið langþráða Flóafár reið yfir föstudaginn 5. mars. Fimm lið glímdu við fárið að þessu sinni og stóðu sig vel í hinum ýmsu þáttum fársins, hvort sem um var að ræða þrautirnar sem kennarar lögðu fyrir, búningar og heróp eða annað sem tilheyrir því að taka þátt í fjörinu. Aðalatriðið er að vera með. Vampíruveldið sigraði að þessu sinni, lið Super Mario Bros varð í öðru sæti og Cabras höfnuðu í því þriðja. Fleiri myndir má sjá hér.
|
|
Góðir gestir í enskudeild |
|
|
|
2. mars síðastliðinn fékk enskudeild skólans og bóksalan góða gesti í heimsókn. Þar voru á ferðinni Kristín Einarsdóttir frá Pennanum, sem útvegar bóksölu FSu erlendar kennslubækur, og Charlotte Rosen Svenson frá Pearson útgáfufyrirtækinu, sem m.a. gefur út Total English enskukennsluseríuna sem notuð er í ýmsum þyngdarstigum á enskuáföngum, allt frá fornáminu upp í ensku 203/212. Charlotte sýndi okkur ýmsar bækur og hugmyndir að nýjungum og kennarar voru duglegir að koma með ábendingar um það sem betur mætti fara í Total bókunum. Það spillti svo ekki fyrir að Nanna sýndi snilldartakta með kaffibrauðinu sem skagaði hátt í meðal fermingarveislu. |
|
Myndir úr ljósmyndamaraþoni |
|
|
|
|
Meðal þess sem fram fór á Kátum dögum var ljósmyndamaraþon. Myndirnar eru nú komnar á netið og er hægt að skoða þær hér. Úrslit verða kunngerð um leið og úrslit í Flóafári. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |