Fréttabréf 2011

Fréttablað nr. 9  nóvember 2011


Kæri hollvörður
 
Um leið og við sendum þér greiðslubeiðni fyrir félagsgjaldi ársins 2011 viljum við þakka þér stuðninginn og segja stuttar fréttir af högum samtakanna okkar sem eru orðin 9 ára. Ríflega 300 einstaklingar eru félagar auk 43 lögaðila.
 
Árgjald er nú kr. 1.000 fyrir einstaklinga en 3.700 kr. hjá fyrirtækjum og félagasamtökum. Félagsgjöldin hækka nú um 100 krónur til að standa undir póstkostnaði. Þetta er í fyrsta skipti sem þau hækka frá stofnun samtakanna árið 2002.  Þú ert vinsamlega beðin/n að borga meðfylgjandi gíróseðil eða greiða samsvarandi kröfu í heimabankanum þínum. Við vonum að þú haldir áfram að styðja við bakið á okkur til góðra verka fyrir Fjölbrautaskólann.
 
Hér að neðan eru helstu fréttir af því hvað samtökin hafa verið að fást við.
 
Í stjórninni sem kosin var á síðasta aðalfundi eru sem fyrr, Hjörtur Þórarinsson formaður, Anna S. Árnadóttir gjaldkeri, Sigurður Eyþórsson ritari. Auk þess situr Nanna Þorláksdóttir í stjórninni sem fulltrúi starfsmannafélags F.Su. og þar er einnig fulltrúi nemendafélags skólans.
 
Sú hefð er komin á að aðalfundur samtakanna er haldinn á útskriftardegi vorannar í skólanum. Næsti aðalfundur verður því á útskriftardaginn í maí 2012. Útskriftin er vanalega kl. 14.00. Aðalfundurinn hefst eftir kaffið að lokinni útskrift um kl. 16:20 í stofu 202 í Odda.  
Á fundinum er hægt að kynnast starfinu betur og skrá sig í samtökin en skráningarblöðum er líka dreift við útskriftir.
 
Markmið samtakanna er annars vegar að auka tengsl F.Su. við fyrrum nemendur sína og aðra þá sem bera hag skólans fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og efla samband félagsfólks sín á milli. Þetta viðfangsefni er alltaf í mótun, en hefur hingað til falist helst í því að styrkja góða útskriftarnemendur og önnur verkefni skólanum til heilla.
 
Stjórn Hollvarðasamtakanna hefur venju samkvæmt veitt námsstyrk til þess nemanda eða nemenda sem eru fremstir við lokapróf frá skólanum á hverri önn. Styrkurinn er nú kr. 60.000
 
Á haustönn 2010 var styrkþegi Guðjón Reykdal Óskarsson. Magnús Borgar Friðriksson, Rakel Nathalie Kristinsdóttir og Aníta Kristjánsdóttir fengu styrk á vorönn 2011
 
Formaður samtakanna, Hjörtur Þórarinsson, afhenti styrkinn. Frá því að samtökin voru stofnuð hafa 32 nemendur fengið þennan styrk, alls tæpar 1.5 milljónir króna.
 
Jafnframt fá allir útskriftarnemendur að gjöf vandaðan penna með merki skólans frá Hollvarðasamtökunum.
 



Á vorönn 2011 og í sumar vann Gylfi Þorkelsson, íslenskukennari við skólann, að lokaverkefni til MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu. Í lokaverkefninu (meistararitgerðinni) er m.a. rakin saga Fjölbrautaskóla Suðurlands í 30 ár. Ritgerðin ber nafnið „Fjölbrautaskóli Suðurlands – Hornsteinn í héraði 1981-2011“. Stjórn Hollvarðasamtakanna styrkti verkefnið um hálfa milljón króna. Stefnt er að því að gefa sögu skólans út eins fljótt og tök eru á.

Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur Helgi Hermannsson kennari við skólann séð um ritstjórn hennar. Skoða má síðuna undir liðnum “Samstarf” á fsu.is, en slóðin er http://fsu.is/hvfsu. Helgi hefur einnig umsjón með félagaskrá samtakanna og uppfærslum hennar. 
 
Helga eru sem áður færðar þakkir fyrir þau tengsl sem hann hefur “netfest” milli okkar og þeirra fjölmörgu fyrrum nemenda sem styrkja okkur í þögn en halda tryggð við skólann sinn. Við vonum að þú sjáir þér fært að slást í hópinn.
 
Margir eldri árgangar hafa komið á útskriftir og fært skólanum fjárupphæðir til sérstakra verkefna. Hollvarðasamtökin geta aðstoðað við að koma því á að eldri árgangar komi á útskriftarhátíðir og rækti samband sitt við skólann um leið og þeir hitta gamla skólafélaga. Nokkru fyrir skólaslit leitum við uppi tengiliði frá þessum árgöngum og minnum þá á þessi tímamót. Yfirleitt gætir meiri áhuga eftir því sem lengra líður frá útskrift. Samtökin hafa reynt að styrkja þann þátt að eldri árgangar komi á útskriftarhátíðir og láti í ljós vott ræktarsemi við skólann um leið og þeir hafa tækifæri til að hitta gamla skólafélaga. Ef þú átt bráðum útskriftarafmæli hvetjum við þig til að hafa samband við samtökin (hollverdirfsu@gmail.com) og við munum veita alla þá aðstoð sem við getum.
 
Samtökin tóku þátt í að undirbúa veglega 30 ára afmælishátíð skólans sem fram fór þann 13. september sl. Margir komu í skólann til að fagna þessum tímamótum sem minnst var með hátíðardagskrá frá morgni til kvölds
 
Myndir frá hátíðinni er að finna á vef skólans undir:  Myndir úr skólalífi/myndasafn
 
Við viljum benda á að hægt er að skrá sig í samtökin á heimasíðu skólans fsu.is (Undir liðnum “Samstarf" eins og getið er að ofan).
 
Útskriftarnemendum er skipulega boðin aðild ári eftir námslok en allir velunnarar skólans eru hvattir til að skrá sig.
 
Um leið og við þökkum öllum sem hafa lagt okkur lið hvetjum við þig til þess að fylgjast með fréttum af skólanum á vef hans fsu.is. Jafnframt er hægt að senda samtökunum póst á netfangiðhollverdirfsu@gmail.com
 
Stjórnin