Fréttabréf 2009

Fréttabréf nr. 7 –  nóvember 2009
  
Kæri Hollvörður
 
 
Um leið og við sendum þér gíróseðil fyrir félagsgjaldi ársins 2009 viljum við þakka þér stuðninginn og segja stuttar fréttir af högum samtakanna okkar sem eru orðin 7 ára. Um 300 einstaklingar eru félagar auk 50 lögaðila.
 
Árgjald er áfram óbreytt; kr. 900 fyrir einstaklinga en 3.600 kr. hjá fyrirtækjum og félagasamtökum. Félagsgjöldin hafa verið óbreytt frá stofnun samtakanna árið 2002. Við vonum að þú haldir áfram að styðja við bakið á okkur til góðra verka fyrir Fjölbrautaskólann.
 
Í stjórninni sem kosin var á síðasta aðalfundi þann 22. maí 2009 eru sem fyrr, Hjörtur Þórarinsson formaður, Anna S. Árnadóttir gjaldkeri, Sigurður Eyþórsson ritari. Auk þess situr Nanna Þorláksdóttir í stjórninni sem fulltrúi starfsmannafélags FSu og þar er einnig fulltrúi nemendafélags skólans.
 
Sú hefð er komin á að aðalfundur samtakanna sé haldinn á útskriftardegi vorannar í skólanum. Næsti aðalfundur verður því á útskriftardaginn í maí 2010. Útskriftin er vanalega kl. 14.00 og hefst þá fundurinn eftir kaffið að lokinni útskrift um kl. 16.20 og verður haldinn í stofu 202 í Odda.
 
Markmið samtakanna okkar er annars vegar að auka tengsl FSu við fyrrum nemendur sína og aðra þá sem bera hag skólans fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og efla samband félagsfólks sín á milli. Þetta viðfangsefni er alltaf í mótun, en hefur hingað til falist helst í því að styrkja góða útskriftarnemendur og önnur verkefni skólanum til heilla.
 
Stjórn Hollvarðasamtakanna hefur venju samkvæmt veitt námsstyrk til þess nemanda eða nemenda sem eru fremstir meðal jafningja við lokapróf frá skólanum á hverri önn.
 
Við útskrift á haustönn 2008 fengu þær Matthildur María Guðmundsdóttir og Lilja Sigurbjörg Harðardóttir 50.000 króna styrk og á vorönn 2009 fengu þau Sigrún Guðný Arndal og Arnar Freyr Óskarsson sömu upphæð.
 
Formaður samtakanna, Hjörtur Þórarinsson afhenti styrkinn. Frá því að samtökin voru stofnuð hafa 25 nemendur fengið þennan styrk og alls um eina milljón króna.
   
Jafnframt fá allir útskriftarnemendur að gjöf vandaðan penna með merki skólans frá Hollvarðasamtökunum.
 
Samtökin sendu gjöf með heillaóskum til Háskólafélags Suðurlands sem stofnað var í september sl.
 
Unnið er að söguritun skólans sem er framhald söguritunar fyrsta áratugs skólans 1981-1991 sem þegar hefur verið gefin út. Stjórn Hollvarðasamtakanna styrkir m.a. verkefnið en markmiðið er saga áranna 1991-2011 komi út 2011
 
Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur Helgi Hermannsson kennari við skólann séð um þá síðu í samráði við stjórn. Skoða má síðuna undir liðnum “Samstarf” á fsu.is, en slóðin er http://fsu.is/hvfsu/ Helgi hefur nú einnig tekið að sér að halda utan um félagaskrá samtakanna og viðhald hennar. Helga eru sem áður færðar þakkir fyrir þau tengsl sem hann hefur “netfest” milli okkar og hins mikla fjölda sem styrkir okkur í þögn en heldur tryggð við skólann sinn.
 
Margir eldri árgangar hafa komið á útskriftir og fært skólanum fjárupphæðir til sérstakra verkefna. Hollvarðasamtökin geta aðstoðað við koma því á að eldri árgangar komi á útskriftarhátíðir og rækti samband sitt við skólann um leið og þeir hitta gamla skólafélaga. Við leitum uppi nokkru fyrir skólaslit tengiliði frá þessum árgöngum og minnum þá á þessi tímamót. Enn sem komið er hafa yngstu hóparnir ekki skilað sér. Þess gætir meir hjá þeim eldri að koma við skólaslit. Samtökin hafa reynt að styrkja þann þátt að eldri árgangar komi á útskriftarhátíðir og láti í ljós vott ræktarsemi við skólann um leið og þeir hafa tækifæri til að hitta gamla skólafélaga. Á þessu ári eru 26 ár síðan að FSu. útskrifaði fyrst stúdenta
 
Við viljum benda á að hægt er að skrá sig í samtökin á heimasíðu skólans fsu.is (Undir liðnum “Samstarf" eins og getið er að ofan).
 
Útskriftarnemendum er skipulega boðin aðild ári eftir námslok en allir velunnarar skólans eru hvattir til að skrá sig.
 
Að lokum hvetjum við þig til þess að fylgjast með fréttum af skólanum á vef hans fsu.is. Jafnframt er hægt að senda samtökunum póst á netfangið hollverdirfsu@gmail.com
 
 
 
Stjórnin