Fréttabréf 2008

Fréttabréf nr. 6 – október 2008


Kæri Hollvörður 

Um leið og við sendum þér gíróseðil fyrir félagsgjaldi ársins 2008 viljum við þakka þér stuðninginn og segja áfram fréttir af högum samtakanna okkar sem stofnuð voru 2002. Um 300 einstaklingar eru nú félagar auk 50 lögaðila.

 

Árgjald er áfram óbreytt; kr. 900 fyrir einstaklinga en 3.600 kr. hjá fyrirtækjum og félagasamtökum. Félagsgjöldin hafa verið óbreytt frá stofnun samtakanna árið 2002. Við vonum að og þú haldir áfram að styðja við bakið á okkur til góðra verka fyrir Fjölbrautaskólann.

 

Í stjórninni sem kosin var á síðasta aðalfundi þann eru sem fyrr, Hjörtur Þórarinsson formaður, Anna S. Árnadóttir gjaldkeri, Sigurður Eyþórsson ritari. Auk þess situr Nanna Þorláksdóttir í stjórninni sem fulltrúi starfsmannafélags F.Su og þar er einnig fulltrúi nemendafélags skólans.

 

Sú hefð er komin á að aðalfundur samtakanna sé haldinn á útskriftardegi vorannar í skólanum. Næsti aðalfundur verður því á útskriftardaginn í maí 2008. Útskriftin er vanalega kl. 14.00 og hefst þá fundurinn eftir kaffið að lokinni útskrift um kl. 16.20 og verður haldinn í stofu 202 í Odda.

 

Markmið samtakanna okkar er annars vegar að auka tengsl F.Su við fyrrum nemendur sína og aðra þá sem bera hag skólans fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og efla samband félagsfólks sín á milli. Þetta viðfangsefni er alltaf í mótun, en hefur hingað til falist helst í því að styrkja góða útskriftarnemendur og önnur verkefni skólanum til heilla.

 

Stjórn Hollvarðasamtakanna hefur venju samkvæmt veitt námsstyrk til þess nemanda eða nemenda sem eru fremstir meðal jafningja við lokapróf frá skólanum á hverri önn.

 

Við útskrift á haustönn fékk Sara Kristín Finnbogadóttir 50.000 króna styrk og á vorönn 2008 fengu þær Dröfn Hilmarsdóttir og Inga Berg Gísladóttir sömu upphæð. Formaður samtakanna, Hjörtur Þórarinsson afhenti styrkinn fyrir þeirra hönd.  Frá því að samtökin voru stofnuð hefur 21 nemandi fengið þennan styrk og alls hefur verið varið til þessa rúmum 800 þúsund krónum.

 

Unnið er að söguritun skólans sem yrði framhald söguritunar fyrsta áratugs skólans 1981-1991 sem þegar hefur verið gefin út. Stjórn Hollvarðasamtakanna styrkir m.a. verkefnið.


Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur Helgi Hermannsson kennari við skólann séð um þá síðu í samráði við stjórn. Skoða má síðuna undir liðnum “Samstarf” á fsu.is, en slóðin er http://fsu.is/hvfsu/ Helgi hefur nú einnig tekið að sér að halda utan um félagaskrá samtakanna og viðhald hennar.  Helga eru færðar miklar þakkir fyrir þau tengsl sem hann hefur “netfest” milli okkar og hins mikla fjölda sem styrkir okkur í þögn en heldur tryggð við skólann sinn.

 

Margir eldri árgangar hafa komið á útskriftir og fært skólanum fjárupphæðir til sérstakra verkefna. Hollvarðasamtökin geta aðstoðað við koma því á að eldri árgangar komi á útskriftarhátíðir og rækti samband sitt við skólann um leið og þeir hitta gamla skólafélaga. Við leitum uppi nokkru fyrir skólaslit tengiliði frá þessum árgöngum og minnum þá á þessi tímamót. Enn sem komið er hafa yngstu hóparnir ekki skilað sér. Þess gætir meir hjá þeim eldri að koma við skólaslit. Meðan takmörkuð hefð hefur náð að festast þá hafa samtökin reynt að styrkja þann þátt að eldri árgangar komi á útskriftarhátíðir og láti í ljós vott ræktarsemi við skólann um leið og þeir hafa tækifæri til að hitta gamla skólafélaga. Á þessu ári eiga fyrstu árgangarnir 25 ára útskriftarafmæli.

 

Við viljum benda á að hægt er að skrá sig í samtökin á heimasíðu skólans fsu.is (Undir liðnum “Samstarf" eins og getið er að ofan).

 

Útskriftarnemendur hvers árs eru skráðir inn árið eftir útskrift og mun gefast kostur á að ganga til liðs við samtökin ef þeir kjósa. Þeir greiða þó ekki félagsgjald fyrr en ári eftir námslok í Fsu.

 

Að lokum hvetjum við þig til þess að fylgjast með fréttum af skólanum á vef hans fsu.is. Hægt er að skrá sig á póstlista þar og fá fréttirnar sendar í tölvupósti í hverri viku.  Jafnframt er hægt að senda samtökunum póst á netfangið hollverdirfsu@gmail.com

 

Stjórnin