VÞVS1VA01

VÞVS1VA01

Verkleg þjálfun á vinnustað. 

 

Einingar:  2

                

Hæfniþrep:  1

                   

 

Lýsing: 

Nemendur kynnast störfum í ferða- og matvælagreinum á vinnustöðum og í atvinnulífi, í hverju störfin eru fólgin og við hvaða aðstæður þau fara fram. Kynnt er fyrir nemendum mikilvægi samskipta við  samstarfsfólk og viðskiptavini.  Nemendur fá verklega þjálfun í helstu grunnþáttum starfa í ferða- og matvælagreinum.

Forkröfur:  Engar

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi störfum í ferða- og matvælagreinum, í hverju þau eru fólgin og hvar þau fara fram
  • fjölbreytni starfa í ferða- og matvælagreinum
  • hvernig návígi við viðskiptavini er háttað í störfum í ferða- og matvælagreinum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • takast á við margbreytileg störf í ferða- og matvælagreinum
  • umgangast viðskiptavini á viðurkenndan hátt
  • vinna við öll grunnstörf er tengjast ferða- og matvælagreinum og gera sér grein fyrir þeim kröfum sem gerðar eru til starfsmanna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna við mismunandi störf í ferða- og matvælagreinum
  • bregðast við þeim kröfum sem gerðar eru til starfa í ferða- og matvælagreinum
  • umgangast viðskiptavini á faglegan og viðurkenndan hátt
  • annast helstu grunnstörf í ferða- og matvælagreinum

Námsmat

Umsögn frá starfsnámsstað um nemandann.

Leiðbeiningar og athugasemdir (fyrir aðra kennara)

Dags: 

Höfundur: