VINU3SH02

VINU3SH02 - Undirbúningur fyrir starfsþjálfun í hestamennsku, seinni hluti

 

Lýsing: Meginviðfangsefni áfangans er að undirbúa nemendur fyrir starfsþjálfunaráfangann VINH3SH10.  Nemendum er kennt af fylla út vinnuskýrslur um unna verkþætti, fylla út gátlista um beitarástand lands og taminga- og þjálfunarástand hesta. Einnig er farið í gerð þjálfunaráætlana og mikilvægi markmiðasetningar, ásamt gerð dagbókar. Farið er yfir fjölbreyttar tamningar- og þjálfunaraðferðir.

Forkröfur: HEST2GÞ05, REIM2GÞ05, FÓHE1GR03, VINU2FH02

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu verkþáttum starfsnema á starfsnámsstað
  • viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
  • starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema á starfsnámsstað
  • hirðingu og fóðrun hrossa
  • mismunandi vinnuaðferðum, nálgun við þjálfun hesta
  • mati á andlegu og líkamlegu heilbrigði hrossa
  • grunnþjálfun hesta, hringteymingum og vinnu við hönd
  • markvissum vinnubrögðum
  • helstu þjálfunaraðferðum
  • kostum og göllum mismunandi vinnuaðferða
  • mati á tamningu og þjálfunarstigi hrossa.
  • mati á beitilandi fyrir hross.
  • markmiðasetningu í hestamennsku og þjálfunaráætlunum

 

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag á vinnustað.

 

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Fylgja leiðbeinandi verklagsreglum á vinnustað

Námsmat:

Mæta þarf í alla hluta áfangans til að standast hann.

 

Útgáfunúmer:

 

Skólar:

 

Leiðbeiningar:

 

Fyrirmynd: