VINH3SH10

VINH3SH10 – Vinnustaðanám í hestamennsku – seinni hluti

 

Lýsing: Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í hestamennsku. Meginviðfangsefni áfangans er að nemandinn fái að aðstoða við og framkvæma helstu verk sem unnin eru varðandi hrossahald starfsnámsstaðarins og auki þar með þekkingu sína, verkfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.  Fái innsýn í í stjórn og rekstur tamningastöðvar/hrossabús/hestatengds ferðaþjónustufyrirtækis svo og þjálfun í mannlegum samskiptum. Fylgist með beitarástandi lands sem og kanni þjálfunarástand hesta. Nemandinn heldur dagbók yfir allt tímabilið þar sem koma fram lýsingar á daglegri vinnu auk lista yfir unnar klukkustundir. Einnig þarf hann að skrifa verklýsingar á verkþáttum starfsnámsins og gera þjálfunarplan fyrir a.m.k. 1 hest. Lögð er áhersla á það að nemandi fái tækifæri til að taka þátt í helstu verkum starfsnámsstaðarins og fái að grunnþjálfa hesta og fylgja eftir markvisst a.m.k. einum hesti. Fyrir þann hest er gerð þjálfunaráætlun og lagt mat á árangur við lok starfsnáms. Starfsþjálfunin fer fram að sumri. Það þarf að skila minnst 240 klukkustundum á ekki skemmri tíma en 6 vikum til að uppfylla skilyrði áfangans.  Vinnutíminn skal falla að því starfi sem fram fer á starfsnámsstaðnum. Nemandi finnur sér sjálfur starfsnámsstað og umsjónarmann, sem verkefnisstjóri skólans þarf að samþykkja áður en starfsnám hefst. Hlutverk umsjónarmanns er að stjórna starfsnáminu á staðnum, kenna nemandanum og meta framvindu námsins.

Forkröfur: HEST2KF03, REIM2KF05, FÓHE1GR03, FÓHE2HU03, VINU3SH02. Unnt er að taka starfsnámsáfangana, VINH2FH10 og VINH3SH10, hvern á fætur öðrum að uppfylltum skilyrðum undanfara.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
  • Starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema
  • Mismunandi vinnuaðferðir og nálgun við þjálfun hesta
  • Helstu þjálfunaraðferðum
  • Kostum og göllum mismunandi vinnuaðferða
  • Mati á tamningu og þjálfunarstigi hrossa.
  • Mati á beitilandi fyrir hross.
  • Markmiðasetningu í hestamennsku
  • Þjálfunaráætlunum

 

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

 

  • Tileinka sér viðeigandi vinnubrögð á starfsnámsstað
  • Leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
  • Geta unnið sjálfstætt og af fagmennsku við afmörkuð verkefni
  • Þekkja kosti og galla ólíkra vinnuaðferða
  • Meta beitiland fyrir hross
  • Meta þjálfunarástand hrossa
  • Vinna markvisst og búa til þjálfunaráætlun

 

 

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sinna helstu verkefnum, verkþáttum og vinnubrögðum starfsnámsstaðarins
  • sinna grunnþáttum er lúta hirðingu og aðbúnaði hesta
  • aðstoða við faglega þjálfun hests
  • geta brugðist rétt við algengustu óhöppum sem upp koma við ástundun hestamennsku
  • nota mismunandi vinnuaðferðir og nálgun við þjálfun hesta
  • meta þjálfunarástand hrossa á þartilgerðum matsblöðum
  • sýna frumkvæði og fagmennsku við ólík úrlausnarefni á starfsnámsstaðnum
  • setja sér markmið í hestamennsku og vinna kerfisbundið samkvæmt þeim,
  • hafa gott vald á eigin líkama, ásetu og stjórnun á hestbaki og nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu.
  • nýta sér búnað og aðstöðu og fjölbreyttar aðferðir til að hámarka góðan árangur við þjálfun hests.
  • grunnþjálfa hest á líkamlegum og andlegum forsendum hestsins, með tilliti til jafnvægis og góðs forms.
  • setja upp skynsamlegar aðstæður við þjálfun hests og leggja mat á árangur.
  • greina þjálfunarstig hesta og setja fram einfaldar þjálfunaráætlanir og fylgja þeim.
  • nýta sér flestar fimiæfingar rétt við þjálfun þegar við á.
  • þjálfa markvisst og geta bætt allar grunngangtegundir auks tölts.
  • greina og bregðast á viðeigandi hátt við helstu sjúkdómum/vanheilsu hrossa.
  • greina rétta og góða járningu fótstöðu.

Námsmat:

Rétt útfyllt ferilbók

 

Útgáfunúmer:

 

Skólar:

 

Leiðbeiningar:

 

Fyrirmynd: