VINH2FH10

VINH2FH10 – Vinnustaðanám í hestamennsku – fyrri hluti

 

Lýsing: Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í hestamennsku. Meginviðfangsefni áfangans er að nemandinn fái að aðstoða við og framkvæma helstu verk sem unnin eru varðandi hrossahald starfsnámsstaðarins og auki þar með þekkingu sína, verkfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.  Fái innsýn í stjórn og rekstur tamningastöðvar/hrossabús/hestatengds ferðaþjónustufyrirtækis svo og þjálfun í mannlegum samskiptum.  Nemandinn á að fylgjast með andlegu og líkamlegu heilbrigði hesta s.s. ástandi járninga, heilbrigði fóta ásamt fóðurástandi og almennu heilbrigði. Nemandinn heldur dagbók yfir allt tímabilið þar sem koma fram lýsingar á daglegri vinnu auk lista yfir unnar klukkustundir og skrifar verklýsingar á verkþáttum starfsnámsins. Lögð er áhersla á að starfsneminn fái að aðstoða við umsjón og hirðingu hesta á starfsnámsstaðnum og fái tækifæri til að aðstoða við grunnþjálfun á a.m.k. 3 hestum. Starfsþjálfunin fer fram að sumri. Það þarf að skila minnst 240 klukkustundum á ekki skemmri tíma en 6 vikum til að uppfylla skilyrði áfangans.  Vinnutíminn skal falla að því starfi sem fram fer á starfsnámsstaðnum. Nemandi finnur sér sjálfur starfsnámsstað og umsjónarmann, sem verkefnisstjóri skólans þarf að samþykkja áður en starfsnám hefst. Hlutverk umsjónarmanns er að stjórna starfsnáminu á staðnum, kenna nemandanum og meta framvindu námsins.

Forkröfur: HEST1GF05, REIM1GF05, FÓHE2HU03, VINU2FH02

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
  • Starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema á starfsnámsstað
  • Hirðingu og fóðrun hrossa
  • Mismunandi vinnuaðferðum, nálgun við þjálfun hesta
  • Mati á andlegu og líkamlegu heilbrigði hrossa
  • Grunnþjálfun hesta
  • Hringteymingum og vinnu við hönd
  • Markvissum vinnubrögðum

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Tileinka sér viðeigandi vinnubrögð á starfsnámsstað
  • Leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
  • Umgangast hesta og annast þá á réttum og öruggum forsendum
  • Leggja mat á andlegt og líkamlegt heilbrigði hesta.
  • Nota helsta búnað og aðstöðu sem fylgir greininni.
  • Hugsa rétt um hesta, fóðra þá og annast þá með tilliti til andlegs og líkamlegs heilbrigðis þeirra.
  • Nýta sér fjölbreyttan búnað og aðstöðu í greininni.
  • Nýta sér markviss og fjölbreytt vinnubrögð við grunnþjálfun hrossa

 

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sinna grunnþáttum er lúta hirðingu, fóðrun og aðbúnaði hesta
  • umgangast hesta og annast þá á réttum forsendum
  • leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
  • grunnþjálfa hesta með mismunandi þjálfunaraðferðum.
  • greina rétta og góða járningu fótstöðu.
  • meta andlegt og líkamlegt heilbrigði hesta

 

Námsmat:

Rétt útfyllt ferilbók

 

Útgáfunúmer:

 

Skólar:

 

Leiðbeiningar:

 

Fyrirmynd: