VFFM1VA10

VFFM1VA10

Verkleg færniþjálfun ferða- og matvælagreina

Einingar:  10

                

Hæfniþrep: 1

                    

 

Lýsing:

Nemendur fá kynningu á starfi framreiðslu- og matreiðslumannsins, forsendum starfsins og við hvaða aðstæður störfin fara fram. Kynnt er fyrir nemendum umfang starfa og hve stór þáttur samskipti við gesti eru. Nemendur fá kynningu á réttindum og skyldum starfsmanna sem og fyrirtækja við starfsmenn.  Nemendur öðlast þjálfun í innkaupum á hráefni til matargerðar og á öðrum aðföngum, kynningu og verklega þjálfun í helstu þáttum starfa í ferða- og matvælagreinum. Nemendur þjálfast í að elda mat og reiða fram og í notkun helstu áhalda. Lögð er áhersla á persónulegt hreinlæti skv. HACCP skilgreiningum.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • starfi framreiðslu- og matreiðslumanna og því umhverfi sem störfin fara fram í
  • persónulegu hreinlæti og gildi þess í matvælagreinum
  • hvað felst í störfum framreiðslu- og matreiðslumanna og möguleikum sem þau bjóða upp á til frekara starfs
  • áhöldum og tækjum sem notuð eru í ferða- og matvælagreinunum og notkunarmöguleika þeirra
  • góðum siðum er varða umgengni við gesti og samstarfsfólk
  • grunnþáttum í framreiðslu mismunandi rétta á veitingastað
  • grunnþáttum í eldun einfaldra rétta í samræmi við verklagsreglur
  • notkun uppskrifta og uppskriftabóka í matreiðslu
  • réttindum og skyldum starfsmanna
  • innkaupum matvara og annarra aðfanga

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • afla sér frekari þekkingar í ferða- og matvælagreinum
  • geta unnið einföld grunnstörf í framreiðslu og matreiðslu
  • hafa skilning á því til hvers er ætlast í störfum framreiðslu- og matreiðslufólks
  • vinna með helstu áhöld og tæki sem notuð eru við störf í framreiðslu og matreiðslu
  • að hafa þekkingu á magntöku hráefnis og  hagkvæmni í innkaupum
  • gæta að eigin hreinlæti og því hreinlæti sem kröfur eru gerðar um í matvælagreinum, (HACCP)
  • þekkja  hlutverk fyrirtækja gagnvart starfsmönnum m.t.t. kjaramála

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leggja lín á borð og brjóta munnþurrkur
  • annast grunnborðlagningu
  • elda og framreiða einfalda hádegisverðarrétti
  • vinna einföld verkefni í framreiðslu og matreiðslu
  • umgangast tæki sem notuð eru í veitingasal, eldhúsum veitingastaða og kunna rétta notkun þeirra
  • notkun á mismunandi hnífum við störf í matreiðslu
  • skera grænmeti fyrir mismunandi rétti
  • grunnverkun á fiski, beinhreinsun og roðflettingu
  • matreiða súpur og sósur frá grunni
  • raða mat á matarfat og diska eftir réttum faglegum hefðum
  • binda upp kjöt fyrir steikingu
  • umgangast gesti og samstarfólk við störf í matvælagreinum
  • að leita hagstæðra innkaupa á matvörum
  • að þekkja réttindi og skyldur starfsmanna á vinnustað

Námsmat: Verkefni og próf

Dags:  Febrúar 2014

Höfundur:  Baldur Sæmundsson og Marína Sigurgeirsdóttir