UMHV2UM05

Titill

Umhverfisfræði fyrir alla

Námsgrein Umhverfisfræði
Viðfangsefni Umhverfisfræði fyrir alla
Skammstöfun UMHV2UM05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í áfanganum, sem ætlaður er nemendum af öllum námsbrautum, er lögð áhersla á að nemendur verði meðvitaðri um þátt einstaklingsins í umhverfisvernd. Nemendur kynnast aðferðum við að áætla áhrif breyttra lifnaðarhátta á umhverfið og leitast er við að auka ábyrgðartilfinningu einstaklingsins gagnvart bæði sínu nánasta umhverfi og umhverfisins á hnattvísu. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum sem við glímum við í heiminum. Fjallað verður um mengun, veðurfarsbreytingar, dýr í útrýmingarhættu og auðlindaþurrð. Kynnt verða hugtökin ,,burðargeta“ og ,,sjálfbærni“, og hugtökin tengd fjölgun mannkyns og aðstæðum á jörðinni. Enn fremur verður fjallað um sjálfbæra auðlindanýtingu. Í áfanganum er leitast við að auka hæfni nemnda í að túlka gögn sem tengjast umhverfismálum á gagnrýninn hátt. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni með gögn sem tengjast umhverfismálum. Nemendur verða hvattir til að velta því fyrir sér hvað móti tengsl manns og náttúru. Fjallað verður um muninn á hagrænum og fagurfræðilegum verðmætum og nemendur hvattir til að velta því fyrir sér hvað hafi áhrif á verðmætamat hvers og eins m.a. við að meta verðmæti í náttúrunni.
Forkröfur engar
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • fjölbreyttum leiðum einstaklingsins til vistvænna lifnaðarhátta
  • hugtökunum burðargeta (e. carrying capacity) og sjálfbærni (e. sustainability) og hvernig þessi hugtök tengjast nýtingu náttúruauðlinda og fjölgun mannkyns
  • hlýnun jarðar, þ.e. orsökum, afleiðingum og ábyrgð einstaklings
  • muninum á hagfræðilegu og fagurfræðilegu verðmætamati í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • endurnýta endurnýtanlegan efnivið og endurvinna sorp í þeim tilgangi að minnka sorp sem þarf að farga
  • meta áhrif hversdagslegra athafna á umhverfið, m.a. með því að nýta sér hugtakið ,,vistspor“ (e. ecological footprint)
  • fjalla um umhverfismál út frá hagfræðilegum og fagurfræðilegum sjónarmiðum
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • minnka ágang á náttúrurauðlindir með vistvænni lifnaðarháttum en áður
  • minnka magn urðaðs sorps með því að endurnýta og endurvinna það sem hægt er
  • túlka á gagnrýninn hátt upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
  • vera virkur þátttakandi í umræðu um umhverfismál
Námsmat Námsmat byggir á leiðsagnarmati, en fjölbreytt verkefni verða metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla er lögð á að veita nemendanum umsagnir um frammistöðu hans, en þeim er ætlað að leiða hann áfram í náminu. Engin skrifleg lokapróf eru haldin.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd