ÞÝSK1BB05

Titill

Grunnáfangi B

Námsgrein Þýska
Viðfangsefni  
Skammstöfun ÞÝSK1BB05
Staða  
Þrep 1
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi atriði legið til grundvallar í kennslunni:

Stuttar frásagnir um hvað fólk gerir í fríi eða á ferðalögum, að lýsa borg og staðsetningu borga, að vísa til vegar, að sinna erindum í borginni, áhugaverðir staðir, svo og líkaminn, heilsa og lifnaðarhættir.

Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á þýsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.

Forkröfur ÞÝSK1AA05
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
  • grundvallarþáttum málkerfisins
  • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
  • lesa ýmiss konar texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • bregðast við spurningum um efni sem hann þekkir og beita kurteisisvenjum og hljómfalli við hæfi
  • beita þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir og nota viðeigandi málfar
  • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi sínu
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig um hugðarefni sín og áhugamál
  • tjá sig um liðna atburði
  • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
  • tjá skoðanir og tilfinningar
  • takast á við kunnuglegar aðstæður í almennum samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • lesa texta af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
Námsmat

Fjölbreytilegt námsmat.

Allir fjórir færniþættir tungumálsins eru metnir, þ.e. tal, ritun, hlustun og lestur.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd Áfanginn er á stigi A1 skv. evrópska tungumálarammanum.