TEXT2FY05

Titill

Fylgihlutir

Námsgrein Textílmennt
Viðfangsefni Fylgihlutir
Skammstöfun TEXT2FY05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Nemendur hanna fylgihluti, t.d. töskur, klúta, skartgripi eða höfuðföt
Forkröfur LIST1LK05
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa þekkingu og skilning á:
  • Þýðingu fylgihluta sem hluta af alklæðnaði
  • Nemendur skoða fylgihluta frá ýmsum tímabilum í sögunni
  • Nemendur fá þjálfun í að hanna og gera fylgihlut út frá eigin forsendum
  • Nemendur hanni fylgihlut með notagildi í huga
  • Nemendur nota pappír og fleira til að móta fylgihlut
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Gera tilraunir með mismunandi form
  • Geta nýtt sér hugmyndafræði úr sögunni til gagnasöfnunar
  • Geta unnið tilraunavinnu út frá gagnasöfnun
  • Geta mótað nothæfan fylgihlut úr textíl
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu  og leikni sem hann hefur aflað sér:
  • að geta hannað sinn eigin fylgihlut
  • að geta nýtt sér hinar ýmsu aðferðir í textílmennt til að setja saman fylgihlut
  • að geta samið og útbúið einfalda en vandaða verklýsingu
  • að geta tamið sér vönduð vinnubrögð
Námsmat Símat: gagnasöfnun, úrvinnsla, mótun, prufuhlutur og/eða tilraunavinna, auðskilin vinnulýsing, fullunnin fylgihlutur, umfang hans og frágangur
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd