STÆR2RU05

Titill

Rúmfræði og hornaföll

Námsgrein Stærðfræði
Viðfangsefni Rúmfræði, flatarmál, hringir, þríhyrningar og hornaföll.
Skammstöfun STÆR2RU05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Unnið er með metrakerfið, flatarmál, rúmmálseiningar, rúmmál, hringi og horn við þá, svo og Pýþagorasarregluna og hornaföll.
Forkröfur STÆR1AJ05
Þekkingarviðmið Nemandinn skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • metrakerfinu
  • flatarmáli og rúmmáli, Pýþagorasarreglunni,  þríhyrningum, hringjum og hornum við þá
  • hornaföllum
Leikniviðmið Nemandi geti notað í einföldu samhengi:
  • Evklíðska rúmfræði
  • metrakerfið, flatarmál og rúmmál, Pýþagorasarregluna, þríhyrninga, hringi og horn við þá
  • hornaföll
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér og t.d:
  • áttað sig á mismunandi tengslum ólíkra aðferða
  • greint og hagnýtt upplýsingar á fyrsta þrepi stærðfræðinnar í töluðu og rituðu máli
  • skráð lausnir sínar skipulega
  • klætt hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leyst þau og túlkað lausnirnar
  • fylgt og skilið röksemdir í mæltu máli og texta og beitt einföldum röksemdum
Námsmat Námsmat byggist á lotuprófum, verkefnum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd