STÆR2AR05

Titill

Algebra og rúmfræði

Námsgrein Stærðfræði
Viðfangsefni Algebra og rúmfræði (undirbúningur)
Skammstöfun STÆR2AR05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Unnið er með algebru, rúmfræði, forgangsröðun aðgerða, talnameðferð, jöfnur og jöfnuhneppi, jöfnu beinnar línu og hnitakerfi. Enn fremur er unnið með hlutfalla- og prósentureikning, vaxtaútreikning, flutninga og myndrit.
Forkröfur Einkunn B/B+ í grunnskóla
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • forgangsröð aðgerða og algengum stærðfræðitáknum
  • talnareikningi og deilanleika með lágum tölum
  • brotum, prósentum, hlutfalla- og vaxtareikningi
  • metrakerfinu, hnitakerfinu, flatarmáli og rúmmáli
  • færslum og einslögun, smækkun og stækkun
Leikniviðmið

Nemandi geti notað í einföldu samhengi:

  • forgangsröðun aðgerða, einangrun breyta
  • talnareikning og deilanleika með lágum tölum
  • brot, prósentur, hlutfalla- og vaxtareikning
  • metrakerfið, hnitakerfið, flatarmál og rúmmál
  • færslur og einslögun, smækkun og stækkun
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér, og til dæmis:
  • miðlað henni í mæltu og rituðu máli
  • beitt skipulegum aðferðum við lausnir þrauta úr kunnuglegu samhengi og útskýrt þær
  • klætt hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leyst þau og túlkað lausnirnar
Námsmat Námsmat byggist á lotuprófum, verkefnum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd