SAGA3SS05

Titill

Saga 20.aldar – stríð, byltingar og stjórnmál.

Námsgrein

Saga

Viðfangsefni

Saga 20.aldar – stríð, byltingar og stjórnmál.

Skammstöfun

SAGA3SS05

Staða

 

Þrep

3

Einingafjöldi

5

Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla

 

Lýsing

Í áfanganum er fjallað um átök þjóða, þjóðfélagshópa og hugmyndastefna frá síðasta fjórðung 19. aldarinnar fram yfir síðari heimsstyrjöld.  Farið verður nánar í orsakir og afleiðingar þeirra atburða sem mótuðu samfélag okkar í dag. Unnið verður bæði með yfirlitssögu sem og einsögu nálgun við umfjöllun um þetta tímabil. Fjölbreytt verkefni verða unni og lagt áherslu á sjálfstæð vinnubrögð nemenda.

 

Forkröfur

Nemandi skal hafa klárað 5 einingar á 2. Þrepi.

Þekkingarviðmið

Nemandi afli sér þekkingar og skilnings á:

- helstu þáttum/viðburðum heimssögunni undir lok 19. aldar og fram á 20. öld

- orsökum þeirra og áhrifum á framvindu mála

- hvernig þessir atburðir eru lykill að stöðu heimsmála í dag

- heimildaöflun

- mikilvægi gagnrýnnar hugsunar í umfjöllun um söguna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

- að færa rök fyrir máli sínu

- heimildavinnu

- að skrifa fræðilega texta

- að meta gildi og áreiðanleika heimilda

- að geta lýst aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarás í stórum dráttum

- að skýra helstu viðburði tímabilsins

- að gera greinarmun á staðreynd og túlkun

- að draga sjálfur ályktanir

- að flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

- kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt

- færa rök fyrir niðurstöðum

- gera sér grein fyrir orsakir og afleiðingar

- geta rakið þróunarferli einhvers þjóðfélagsþáttar s.s. hugmyndar, atvinnuvegar, menningarsvæðis

- tengja atburði heimssögunnar við okkar tíma

- rökræða söguleg deilumál og þekki mismunandi sjónarmið

- geta sýnt kunnáttu sína í ljósu og samfelldu máli

- vinna sjálfstætt og setja fram sögulega greiningu á hugmyndum og atburðum þessa tímabils

Námsmat

Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámsskrá.

Útgáfunúmer

 

Skólar

 

Fyrirmynd