SAGA2YA05

Titill

Saga heims og Íslands frá upplýsingu til loka kalda stríðsins 1991.

Námsgrein

Saga

Viðfangsefni

Saga heims og Íslands frá upplýsingu til loka kalda stríðsins 1991.

Skammstöfun

SAGA2YA05

Staða

 

Þrep

2

Einingafjöldi

5

Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla

 

Lýsing

Í áfanganum er sögunni fylgt í tímaröð frá upplýsingaöld til dagsins í dag. Aðaláhersla verður á Evrópu-  og  Íslandssögu  þótt vísað verði til annarra heimsálfa þar sem tækifæri gefast. Í Íslandssögunni verður lögð áhersla á breytingar frá bændasamfélagi til nútímasamfélags, frá sjálfsþurftarbúskap til iðnvæðingar. Einnig verður litið til áhrifa erlendra atburða, skoðana og viðhorfa hér á landi.

Skoðaðir verða þeir atburðir sem hafa mótað lífskjör, aðstæður og hugmyndaheim á Íslandi sem og annars staðar á vesturlöndum. Lögð verður áhersla á að rekja sögu samfélagsþróunnar með það að markmiði að skilja aðstæður nútímans. Helstu þemu verða t.d. stjórnmál, iðnvæðing og tækninýjungar, átök þjóða og þjóðfélagshópa og sjálfstæðisbarátta Íslendinga. Unnið verður með einsögu nálgun á söguna til þess að skilja aðstæður fólks á tilteknu tímabili.

 

Forkröfur

 

Þekkingarviðmið

Nemandi afli sér þekkingar og skilnings á:

  • helstu þáttum í sögu heimsins og Íslands frá 1800-1991
  • orsökum þeirra og áhrifum á framvindun mála.
  • heimildaöflun
  • að kynna ákveðið viðfangsefni sem byggir á heimildaöflun

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • að færa rök fyrir máli sínu
  • heimildavinnu
  • að skrifa einfalda fræðilegan texta
  • að geta lýst aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarás í stórum dráttum.
  • að skýra helstu viðburði tímabilsins.
  • að gera greinarmun á staðreynd og túlkun.
  • að draga sjálfur ályktanir
  • að flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum.
  • að læra um mikilvægi gagnrýnnar hugsunnar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt.
  • færa rök fyrir niðurstöðum.
  • gera sér grein fyrir orsök og afleiðingu.
  • geta rakið þróunarferli ákveðina þjóðfélagsþáttar s.s. hugmyndar, atvinnuvegar, menningu
  • tengja atburði heimssögunnar við okkar tíma.
  • geta lagt mat á gildi heimilda með því að beita gagnrýnni hugsun
  • geta sýnt kunnáttu sína í ljósu og samfelldu máli.
  • geta skilið aðstæður fólks á öðrum tíma og borið saman við nútímann.

Námsmat

Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámsskrá.

 

Útgáfunúmer

 

Skólar

 

Fyrirmynd