REIM3ÞK05

REIM3ÞK05 - Reiðmennska verklegt VI – Framhaldsþjálfun og keppni

 

Lýsing: Í áfanganum er farið bæði í bóklega og verklega þætti framhaldsþjálfunar hrossa. Nemandinn þjálfar hest markvisst. Nemandi og hestur koma fram á sýningum og/eða keppa í hestaíþróttum. Sjálfstæð vinnubrögð og ástundun.

Forkröfur:HEST3ÞG03, REIM3ÞG05, FÓHE2FU03, VINH3SH02

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • reglur um keppni á íslenskum hestum
  • hvernig þjálfa skal hest og undirbúa fyrir keppni.
  • framhaldsþjálfun með tilliti til réttrar líkamsbeitingar hests

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna sjálfstætt og takar rétta ákvarðanir varðandi næstu stig þjálfunar hestsins.
  • nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu.
  • framfylgja þjálfunaráætlunum til að ná settum markmiðum.
  • nýta sér fjölbreyttar þjálfunaraðferðir við þjálfun gangtegunda.
  • sýna hest í keppni og/eða sýningum.
  • rýna í eigin vinnu og annarra með uppbyggilegri gagnrýni.
  • temja sér sjálfstæð og fagleg vinnubrögð

 

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vera meðvitaður um eigin getu og hafa faglegan metnað.
  • nýtt sér þekkingu á félagskerfi hestamennskunnar sér til gagns.
  • byggja upp og þjálfa hest m.a. til að taka þátt í sýningum og/eða keppni.

 

Námsmat:

Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.

 

Útgáfunúmer:

 

Skólar:

 

Leiðbeiningar:

 

Fyrirmynd: