RAFS2RA04

Titill

Rafsuða-MG

Námsgrein Grunndeild málmiðnaðar
Viðfangsefni

Nemendur kunna skil á helstu suðuaðferðum, efni og suðuvírum. Þeir geta metið aðstæður til rafsuðu og er ljóst hvernig gæta ber fyllsta öryggis við rafsuðu.

Nemendur eru færir um að sjóða plötur í öllum suðustöðum með pinnasuðu, samkvæmt staðlinum ÍST EN 287-1. Færni miðast við kverksuðu og  grunnatriði suðuferlis. Nemendur geta skráð grunnatriði suðuferlislýsingar. Þeir skulu ná suðugæðum í flokki C samkvæmt ÍST EN 25 817.

Skammstöfun RAFS2RA04
Staða  
Þrep  2
Einingafjöldi  4
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing  
Forkröfur Samhliða: RAF 113
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 
helstu suðuaðferðir, afköst þeirra, hagkvæmni og takmarkanir við mismunandi efnisþykkt

eiginleika á mismunandi suðum, s.s. styrk þeirra og hættu á suðugöllum

hvaða suðuaðferðir henta við mismunandi verk

rafsuðutækin; mun á afriðlum og snúningsvélum

mun á suðu með rið- og jafnstraum

mun á suðu með plús- og mínuspól

gildi ljósbogaspennu og tómgangsspennu

-staðal um mat á suðum og suðugalla

-staðal um suðustöður og um hæfnisvottun suðumanna

-staðal um merkingu rafsuðuvíra

-staðal um merkingu stáls, t.d. ÍST EN 22 553

öryggismál:

- brunahættu vegna neistaflugs

- flökkustrauma

- sprengihættu vegna íláta sem innihal da eða hafa innihaldið eldfim efni

- reykflokkun rafsuðuvíra

- mikilvægi góðrar loftræstingar og þrifnaðar

- undirstöðuatriði heilsuverndar

- hlífðarfatnað og hlífar

Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

valið hagkvæmar og öruggar suðuaðferðir við mismunandi verk

útskýrt staðlaðar merkingar pinnasuðuvíra

teiknað upp rafsuðutækið og merkt inn stillingar og leiðara

metið algengustu suðugalla og ástæður þess að þeir myndast

rafsoðið lárétt á plötu beina strengi og með hliðarhreyfingum

rafsoðið kverksuður í PB- og PF- suðustöðum

soðið mismunandi legglengd og a-mál með einum eða fleiri strengjum

stillt suðuvél, valið suðuvíra og soðið samkvæmt suðuferli

metið suðugæði samkvæmt stöðluðum kröfum um útlit og flokkað suðu í gæðaflokka

Námsmat Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd