MYND2TM05

Titill Teiknimyndagerð og myndskreytingar
Námsgrein Myndlist
Viðfangsefni

Teiknimyndagerð og myndskreytingar

Skammstöfun MYND2TM05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Í áfanganum verður farið í gegnum og skoðað eðli myndskreytinga (myndlýsinga) og þýðingu þeirra fyrir annars samfelldan texta. Rýnt verður í skopteikningar dagblaða og tímarita og þau miklu áhrif sem þess háttar miðlun getur haft. Farið verður í uppbyggingu hinnar klassísku myndasögu, mikilvægi myndbyggingu hvers ramma sem og myndbyggingu hverrar síðu og að innihald komst til skila ekki síst í gegnum myndmálið. Einnig verða skoðaðar styttri strípur sbr. í dagblöðum. Lögð verður áhersla á að nemendur finni sinn stíl.

Verkefnin munu felast í því að myndskreyta íslenska smásögu, vinna skopteikningar sem endurspeglan samtímann (rauntíma) hvort heldur á Íslandi eða annars staðar í heiminum, vinna litlar strípur með “punchline” og loks lengri myndasögu út frá þjóðsögum og goðafræði.

Forkröfur  
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • hlutverki og áhrif myndskreytinga með samfelldum texta.
  • hvernig stíll og myndbygging geta byggt upp tilfinningu fyrir textanum.
  • mikilvægi þess að finna rétta vinkilinn úr textanum til myndskreytingar.
  • mikilvægi myndskreyta í upplýsingaheimi nútímans.
  • ábyrgð myndskreyta í hverjum samtíma
  • hvað þarf að vera í myndasögu til þess að hún komist til skila án margara orða og jafnvel orðalaust.
  • mikilvægi flæðis í myndasögunni.
  • mikilvægi góðrar uppsetningar á myndasögu þar sem hver rammi skiptir máli í heildarmyndbyggingu síðunnar.
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í :

  • að greina meginatriði textans sem skal myndskreyta.
  • að geta sagt margt með einni mynd.
  • vekja áhuga á textanum með mynd.
  • að greina þjóðfélagsmál á myndrænan máta.
  • að gera einfalda og samfélagsmiðaða skopteikngu.
  • að setja upp einfalda teiknimyndasögu með eða án texta.
  • að koma flæði myndasögunnar vel skila.
  • að gera hvern ramma einstakan en þó hluta af heildinni.
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • myndskreyta á lýsandi máta einfaldan texta með eigin stíl.
  • gera skopteikningu út frá málefnum líðandi stundar.
  • setja upp einfalda teiknimyndasögu í eigin stíl með góðu flæði og góðri myndbyggingu.
Námsmat Áfanginn er símatsáfangi þar sem hvert viðfangsefni fær sinn ákveðna tíma. Ekkert lokapróf.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd