LÍOL2SS05

Titill LÍOL2SS05
Námsgrein Líffæra og lífeðlisfræði A 
Viðfangsefni  
Skammstöfun LÍOL2SS05
Þrep 2.þrep
Einingafjöldi 5
Lýsing

Farið er í grundvallarhugtök líffærafræðinnar út frá latneskri nafngiftafræði og lífeðlisfræðileg

ferli útskýrð. Fjallað er um svæðaskiptingu líkamans, áttir, líkamshol, skipulagsstig, byggingu

og starfsemi frumna og vefja, flutning efna yfir himnur, jafnvægishneigð og afturvirk kerfi.

Farið er í byggingu og starfsemi þekjukerfis: lagskipting húðar og líffæri; beinakerfis:

beinmyndun, flokkun beina, beinagrind, brjósk, liðir og hreyfingar; vöðvakerfis: innri og ytri

gerð vöðva, vöðvasamdráttur, helstu vöðvar líkamans; taugakerfis: taugavefur, taugaboð,

taugaboðefni, flokkun taugakerfis og starfsemi, skynfæri og skynjun; innkirtlakerfis: innkirtlar

og virkni hormóna.

Forkröfur  
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

- þeirri frumustarfsemi sem liggur til grundvallar allri líkamsstarfsemi

-starfsemi afturvirkra kerfa og grundvallaratriðum í lífeðlisfræðilegum

  ferlum

-latneskum grundvallarhugtökum líffærafræðinnar

-ytri og innri gerð líffæra þeirra líffærakerfa sem fjallað er um og latnesk

 heiti þar að lútandi

-starfsemi þeirra líffærakerfa sem fjallað er um

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

- nota latnesk heiti við að lýsa afstöðu líffæra og líffærahluta

- rekja og útskýra meginþætti lífeðlisfræðilegra ferla

- tengja byggingu líffæra- og líffærahluta við starfsemi þeirra

- vinna með heimildir sem tengjast líffæra- og lífeðlisfræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

- nýta þekkingu sína og leikni í líffæra- og lífeðlisfræði í öðrum

  námsgreinum

-          geta sýnt fram á hvernig lífshættir geta haft áhrif á heilbrigði líkamans

Námsmat

Hlutapróf, verkefni og lokapróf