LÍFF3SK05
Titill |
Skógfræði |
Námsgrein | Líffræði |
Viðfangsefni | Skógfræði / plöntur |
Skammstöfun | LÍFF3SK05 |
Staða | |
Þrep | 2 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing | Markmið áfangans er að nemendur kynnist viðfangsefnum grasafræðinnar / skógfræðinnar með höfuðáherslu á tré sem vaxa á Íslandi. Farið er yfir grunnatriði flokkunarfræði með tilliti til trjáa. Líkamsgerð og lífsstarfsemi skoðuð svo og útbreiðsla, þróunarlegur skyldleiki og nytsemi. Skógar, skógrækt, viðhald og hagnýting skóga og trjásjúkdómar eru meðal viðfangsefnaNánari mörkun viðfangsefnis, s.s. hvaða trjátegundum eru gerð best skil, er ákveðin af viðkomandi skóla. Verklegar æfingar eru þáttur í náminu. |
Forkröfur | Lífeðlisfræði / LÍFF2LN05 |
Þekkingarviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: sögu grasafræði / skógfræði og tengslum við aðrar greinar helstu hugtökum grasafræði / skógfræði aðferðafræði grasafræði / skógfræði rannsókna sérstöðu trjátegunda og skóga / skógræktar á Íslandi sjálfbærri nýtingu á skógum líffræðilegum fjölbreytileika helstu rökum fyrir verndun Íslenskra skóga |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: lesa upplýsingar um ftré og skóg úr máli og myndum beita hugtökum grasafræðinnar í rökrænu samhengi fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru í víðum skilningi greina trjátegundir út i í náttúrunni |
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: geta tekið ábyrga og rökstudda afstöðu til dægurmála tengda trjám og skógrækt á Íslandi tengja undirstöðuþekkingu í grasafræði / skógfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar fjalla um grasafræði / skógfræði á gagnrýninn hátt og velta fyrir sér ólíkum sjónarmiðum og lausnum afla sér frekari upplýsinga og þekkingar á grasafræði- / skógfræðilegum viðfangsefnum |
Námsmat | Símat/leiðsagnarmat þar sem byggt er á fjölbreyttu námsmati: verkefnavinna, jafningjamat, ferlisvinna, smærri próf og kannanir. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | |