LAND2EL05

Titill

Eðlisræn landafræði

Námsgrein Landafræði
Viðfangsefni Eðlisræn landafræði (Náttúrulandafræði)
Skammstöfun LAND2EL05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að efla sjálfstæði og vönduð vinnubrögð nemenda við lausn margvíslegra landfræðilegra verkefna. Sérstök áhersla er lögð á kortagerð, framsetningu upplýsinga á kortum og túlkun korta.

Nemendur vinna með innlenda og erlenda kortagrunna.

Meginefni áfangans fjallar um myndun og mótun lands af völdum innri og ytri afla, um veður og veðurfar, höf og hafstrauma og loftslag, gróður og gróðurfar ásamt þeim beinu og óbeinu áhrifum sem maðurinn hefur á umhverfi og vistkerfi.

Áfanginn er verkefnatengdur þar sem nemendur leysa margvísleg verkefni í tengslum við umfjöllunarefni áfangans .

Forkröfur Grunnskólapróf í náttúrufræðigreinum.
Þekkingarviðmið Nemandi skal  hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • Helstu hugtökum í náttúrulandafræði.
  • Helstu kortagrunnum á alnetinu, bæði íslenskum og alþjóðlegum.
  • Helstu öflum sem vinna að myndun og mótun lands.
  • Helstu áhrifavöldum á umhverfi í breiðum skilningi.
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Nýta sér kort og kortagrunna til afla sér upplýsinga um margvísleg náttúrufarsleg fyrirbrigði.
  • Leita sér upplýsinga um náttúrufar og náttúrufarsleg fyrirbrigði á alnetinu.
  • Greina  náttúrufarsleg fyrirbrigði sem hann sér í umhverfi sínu.
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Draga ályktanir af þeim náttúrufarslegu fyrirbrigðum sem hann sér í umhverfi sínu.
  • Tengja saman ólíka umhverfisþætti til að geta mótað heildarmynd.
  • Spá fyrir um þróun náttúrulegra fyrirbrigða til skamms tíma.
  • Vinna í samvinnu við meðnemendur að gagnaleit og túlkun gagna.
  • Geta rökrætt mögulegar túlkanir niðurstaðna.
  • Geta fært rök fyrir niðurstöðum og ályktunum á þann hátt að áheyandi/lesandi með góðan almennan skilning á efninu en án þess að hafa sérstaka innsýn í viðkomandi atriði geti á sett sig inn í efnið og dregið eigin ályktanir.
Námsmat

Mat á verkefnum nemenda jafn óðum og þeim er skilað til mats. Einnig gangast nemendur undir nokkur rafræn próf.

Þeir nemendur sem ekki ná tilætluðum árangri í verekfnavinnu og rafrænum prófum geta gengist undir skriflegt lokapróf uppfylli þeir lágmarksskilyrði til þess.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd