JARÐ3SJ05

Titill Jarðsaga
Námsgrein Jarðfræði
Viðfangsefni Almenn jarðsaga
Skammstöfun JARÐ3SJ05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
   
Lýsing Í áfanganum er fjallað um almenna jarðsögu: 1)Uppruni og myndun jarðar, tímatal, aldur jarðar, aldursákvarðanir, jarðsögutaflan og skiptingu hennar. 2) Þróun lífs, fyrstu lífverur, breytingar í lífríki, þróun einstakra hópa lífvera, s.s. fiska, lindýra, skriðdýra, fugla og spendýra. Fjöldadauði lífvera og tilgátur um orsakir og afleiðingar. 3) Landrek: Farið yfir helstu tilgátur og kenningar og rökfærslur fyrir þeim. Farið yfir helsu fellingafjallamyndanir, hvernig þær myndast, hvar og hvenær og niðurbrot þeirra. Einnig er fjallað um ferli jarðfleka um yfirborð jarðar, opnanir og lokanir og afstöðu hvers til annars. 4) Ísaldir, hugsanlegar orsakir útbreiðsu, einkenni og lok. 5) Þróun mannsins frá Australopiþekus til Homo Sapiens.
Forkröfur JARÐ2AJ05 eða LAND2EL05
Þekkingarviðmið

Nemandi skal  hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • Helstu hugtökum er varða myndun og mótun Jarðar.
  • Meginatriðum breytinga á yfirborði jarðar sem tengjast landreki.
  • Helstu þáttum í samspili loftslags og stöðu jarðfleka.
  • Meginatriðum í þróun lífs á Jörðinni.
  • Helstu þáttum í þróun mannsins.
  • Uppsetningu, vinnu við og formlegs frágangs heimildaritgerðar.
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • Draga ályktanir af því sem fyrir augu ber.
  • Leita sér upplýsinga um jarðsöguleg atriði úr viðurkenndum heimildum.
  • Nýta sér myndefni og margskonar heimildir til að draga eigin ályktanir um framvindu lands.
  • Greina helstu bergtegundir í handsýni.
  • Að draga ályktanir og setja fram eigin niðurstöður á skipulegan hátt.
  • Að gæta að réttri meðferð heimilda.
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Greina bergsýni í handgreiningu.
  • Geta sýnt fram á samhengi umhverfis og þróunar lífs.
  • Geta greint afstæðan aldur í jarðlagastafla.
  • Geta lesið meginatriði jarðsögu úr ásýnd lands.
  • Geta rökrætt mögulegar túlkanir á ásýnd lands.
  • Geta sett saman formrétta heimildaritgerð um tiltekið efni.
Námsmat

Mat á verkefnum  og annarri vinnu nemenda.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd