ÍÞRÓ2AL02

Titill

Íþróttir – Almenn líkamsrækt

Námsgrein Íþróttir og líkamsrækt
Viðfangsefni Almenn líkamsrækt
Skammstöfun ÍÞRÓ2AL02
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 2
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Áfanginn er að mestu leyti verklegur.

Í áfanganum eru tvær megin áherslur. Annars vegar að nemendur skipuleggi þjálfun sína sjálf og fái tækifæri og aðstöðu til að fara eftir sinni eigin áætlun. Hins vegar að nemendur fái innsýn í og tækifæri til að prófa mismunandi möguleika til líkamsræktar. Hluti áfangans er kenndur í Sundhöll Selfoss,   líkamsræktarstöðvum og öðrum íþróttamannvirkjum á svæðinu.

Forkröfur ÍÞRÓ1ÞH03 og ÍÞRÓ2ÞL03
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hvaða þættir það eru sem þarf að hafa í huga þegar þjálfun er skipulögð
  • hvaða möguleikar eru til líkamsræktar í nærumhverfinu
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
  • að fara eftir eigin tímaáætlun
  • fjölbreyttri þjálfun þols, styrks og liðleika
  • þjálfun, hreyfingu og virkni, sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
Hæfniviðmið Að þessum áfanga loknum skal nemandi geta nýtt sér þekkingu sína og leikni til að:
  • skipuleggja og framkvæma eigin þjálfun
  • geta tileinkað sér þá möguleika til hreyfingar sem í boði eru í nánasta umhverfi
Námsmat Námsmat byggir á þeim verkefnum sem nemendur skila, auk þess sem mæting og virkni er metin í tímum. Ekki er skriflegt próf í áfanganum.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd