ÍÞGR3KÖ03

Titill Íþróttagrein - Körfuknattleikur
Námsgrein Íþróttagrein
Viðfangsefni Körfuknattleikur
Skammstöfun ÍÞGR3KÖ03
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 3
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í körfuknattleik.  Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Farið er yfir reglur í greininni. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og æfingar kenndar sem þjálfa grunnatriðin í körfuknattleik. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Nemendur æfa sig að kenna hvort öðru körfuknattleik.
Forkröfur ÍÞFR2ÞJ03
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á:
  • Körfuknattleik
  • Körfuknattleiksreglum
  • Ýmsum æfingum sem henta í þjálfun barna í körfuknattleik
  • helstu þjálfunaraðferðum í körfuknattleik
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni til að:
  • kenna leikfræði körfuknattleiks
  • beita flautu og dæma körfuknattleik
  • sýna grunnfærni í körfuknattleik
Hæfniviðmið Að þessum áfanga loknum á nemandi að geta
  • kennt leikfræði körfuknattleiks
  • beitt flautu og dæmt körfuknattleik hjá börnum
  • sýnt grunnfærni í körfuknattleik
Námsmat  
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd