ÍSLE3NB05

Titill

Nútímabókmenntir

Námsgrein Íslenska
Viðfangsefni Nútímabókmenntir
Skammstöfun ÍSLE3NB05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist nútímabókmenntum frá 20. öld, með áherslu á seinni hluta 20. aldar og fram til dagsins í dag. Nemendur lesa skáldsögur, smásögur og ljóð tímabilsins og vinna fjölbreytt verkefni í ræðu og riti.
Forkröfur 10 einingar á 2. þrepi.
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • inntaki og einkennum þeirra verka sem lesin eru
  • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
  • helstu einkennum íslensks máls sem nýtast honum í ræðu og riti
  • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
  • helstu bókmenntastefnum sem tengjast viðfangsefninu
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og vandaðan hátt í blæbrigðaríku máli
  • ganga frá texta til birtingar
  • nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra
  • skilja og nota viðeigandi stílbrögð og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
  • nýta sköpunargáfu við vinnslu skapandi verkefna
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • túlka og bera saman bókmenntaverk og setja þau í sögulegt samhengi
  • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
  • velja ritstíl sem hæfir aðstæðum og viðtakendum
  • leggja mat á og efla eigin málfærni og annarra
  • tjá rökstudda afstöðu
  • taka virkan þátt í umræðum
Námsmat

Fjölbreytt námsmat sem byggir á prófum og verkefnum.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd