ÍSLE3KB05

Titill Kvennabókmenntir
Námsgrein Íslenska
Viðfangsefni Kvennabókmenntir
Skammstöfun ÍSLE3KB05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í áfanganum er skyggnst inn í sögu kvennabókmennta. Lesnar eru skáldsögur, smásögur og ljóð eftir konur.
Forkröfur Tveir áfangar á 2. þrepi.
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • inntaki og einkennum þeirra verka sem lesin eru
  • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
  • mismunandi tegundum bókmennta sem konur hafa skrifað
  • helstu bókmenntahugtökum
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og vandaðan hátt í blæbrigðaríku máli
  • ganga frá texta til birtingar
  • nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra
  • skilja og nota viðeigandi stílbrögð og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
  • nýta eigin sköpunargáfu
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
  • skilgreina lykilhugtök
  • greina mismunandi sjónarmið
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • túlka og bera saman bókmenntaverk og setja þau í sögulegt samhengi
  • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
  • velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
  • leggja mat á og efla eigin málfærni
  • tjá rökstudda afstöðu og geta tekið virkan þátt í umræðum
  • beita gagnrýninni hugsun við lesturinn
  • greina dulinn boðskap og hugmyndir
  • átta sig á samfélagslegum skírskotunum
  • sýna siðferðisvitund og víðsýni í málflutningi
Námsmat Símat/leiðsagnarmat þar sem byggt er á fjölbreyttu námsmati.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd