ÍSLE3HB05

Er í endurskoðun

Titill

Yndislestur heimsbókmennta
Námsgrein Íslenska
Viðfangsefni Lestur og túlkun heimsbókmennta
Skammstöfun ÍSLE3HB05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Nemendur lesa fjölbreyttar bókmenntir sér til yndis og fróðleiks. Þeir velja af lista bókmenntaverk sem höfða til þeirra og setja sjálfir saman lesáætlun annarinnar. 

Ritun: Nemendur rita lesdagbók/vangaveltubók þar sem þeir hugleiða bókmenntaverkin og túlka út frá eigin viðmiðum og gildum.

Lestur: Nemendur lesa 6 til 14 bækur, allt eftir því hvers konar bækur þeir hafa valið á listann sinn. Þeir velja eitt verk til að leita heimilda um og kynna sér. Sérstaka umfjöllun um verkið og fræðigreinina á að vinna í lesdagbók.  

Málnotkun: Nemendur þjálfast í að fjalla um og kynna viðfangsefni sín munnlega.

Framsögn: Nemendur gera grein fyrir öllum bókmenntaverkum munnlega í samtali við kennara.

Forkröfur 10 einingar á 2. þrepi
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • inntaki og viðfangsefnum þeirra bókmennta sem hann les
  • grunnhugtökum í bókmenntafræði
  • orðaforða sem nægir til að skilja verkin sem lesin eru
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa sér til gagns og gamans bókmenntaverk jafnt sem nytjatexta og fjalla um inntak þeirra
  • beita gagnrýninni hugsun og koma skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
  • skilja og nota algeng stílbrögð í tal- og ritmáli
  • draga saman og nýta upplýsingar úr lesnum textum
  • flétta saman eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
  • endursegja og kynna af nokkru öryggi bókmenntir sem lesnar eru
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
  • nýta orðfæri lesinna bókmennta til að styrkja eigin málfærni
  • beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu
  • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
  • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
Námsmat Símat
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd