ÍSLE2VI05

Titill

Víkingar

Námsgrein Íslenska
Viðfangsefni Víkingar og menning þeirra
Skammstöfun ÍSLE2VI05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Lögð er áhersla á menningu víkinga.

Nemendur kynnast menningu og menningarheimi víkingaaldar með ýmiskonar verkefnavinnu, verklegri, munnlegri og skriflegri. Farið er fram á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.

Bókmenntir/ritun: Nemendur lesa Snorra-Eddu, sögu eða kafla úr fornum sögum, ljóð frá víkingatímanum og vinna verkefni. Nemendur kynna sér ýmis verk listamanna sem unnin hafa verið út frá menningu víkinga.

Málnotkun: Nemendur kynnast ýmsum breytingum sem orðið hafa á íslenskunni.

Verkmenning og þjóðfélag: Nemendurkynnast þjóðfélagi víkingatímans og velja sér einn þátt til ýtarlegrar rannsóknar.

Framsögn: Nemendur kynna niðurstöður sínar. Gert er ráð fyrir að allir nemendur taki þátt í umræðum og geti rökstutt mál sitt.

Forkröfur Lágmark B á grunnskólaprófi eða ÍSLE1DE05/ÍSLE1MR05.
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • bókmenntum frá víkingaöldinni í lausu og bundnu máli
  • siðferðislegum gildum víkingatímans
  • trúarbrögðum víkinga
  • verkmenningu og verklagi víkinga
  • hvernig þessi arfur frá víkingaöld skilar sér inn í menningu og listir í nútímanum
  • orðaforða víkingatímans og ýmsum breytingum sem orðið hafa til nútímans
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa sér til gagns bókmenntaverk frá víkingatímanum
  • lesa sér til gagns fræðitexta um víkingatímann og menningu hans
  • beita gagnrýninni hugsun við vinnslu verkefna þar sem skoðanir hans koma fram
  • nota á markvissan hátt viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
  • draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og tengja við eigin skoðanir
  • flytja af nokkru öryggi mál sitt frammi fyrir hópi fólks
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • vinna skapandi verkefni í tengslum við menningu og þjóðfélag víkingatímans
  • greina þær breytingar í máli sem orðið hafa frá ýmsum textum sem til eru frá víkingatímanum til nútímamáls
  • beita skýru og lýtalausu máli í ræðu og riti
  • taka þátt í málaefnalegum umræðum og byggja upp skýra röksemdafærslu
  • tjá afstöðu og efasemdir um efni og komast að niðurstöðu
  • túlka bókmenntexta og kafa undir undir yfirborð hans
Námsmat Fjölbreytt námsmat sem byggir á prófum og verkefnum.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd