ÍSLE2OS05

Titill

Orðspor

Námsgrein Íslenska
Viðfangsefni Orðspor
Skammstöfun ÍSLE2OS05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla ÍSLE2OS05
Lýsing

,,Af máli má manninn þekkja.“ Í áfanganum er unnið með tungumálið á fjölbreyttan hátt. Nemendur þurfa að kynna sér margs konar málsnið. Ýmis verkefni eru unnin í ræðu og riti auk þess sem mikil áhersla er lögð á framsetningu fyrir framan myndavélar. Nemendur setja upp eigin sjónvarpsdagskrá með ýmsu frumsömdu efni þar sem reynir á margs konar málsnið.

Forkröfur Lágmark 7 á grunnskólaprófi eða ÍSLE1DE05/ÍSLE1LR05.
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • málfræðihugtökum og hugtökum sem nýtast í tal- og ritmáli
  • orðaforða sem nægir til að skilja íslenskt nútímamál í ræðu og riti
  • mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • beita gagnrýninni hugsun og koma skoðun sinni á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
  • nýta hjálpargögn á markvissan hátt við frágang ritsmíða
  • nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni
  • flytja mál   sitt af nokkru öryggi
  • lesa sér til gagns og gamans bókmenntaverk jafnt sem nytjatexta og fjalla um inntak þeirra
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • vinna að skapandi verkefnum í sambandi við námsefnið
  • styrkja eigin málfærni
  • beita skýru, lýtalausu máli í ræðu og riti
  • taka þátt í málefnalegum umræðum
  • tjá afstöðu og efasemdir um efnið sem unnið er með og komast að niðurstöðu
  • hafa vald á áhrifaríkri málnotkun, svo sem með stílbrögðum
Námsmat Fjölbreytt námsmat þar sem byggt er á prófum og verkefnum.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd