ÍSLA3MB05

Titill

Mál og menning B

Námsgrein Íslenska sem annað tungumál
Viðfangsefni Lestur, ritun og tjáning
Skammstöfun ÍSLA3MB05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Nemendur vinna fjölbreytt og skapandi verkefni þar sem áherslan er á lestur, ritun og sjálfstæð vinnubrögð.

Málfræði   Nemendur vinna fjölbreytt verkefni sem efla málvitund og málfræðikunnáttu.

Málnotkun Nemendur þjálfa markvisst málvitund sína með fjölbreyttum textum.

Ritun   Nemendur skrifa a.m.k. eina heimildaritgerð og fleiri styttri texta.

Lestur Kynnast mismunandi tegundum íslenskra bókmenntaverka að fornu og nýju og lesa a.m.k. eitt lykilverk úr bókmenntasögu.

Tjáning Nemendur flytja   eigin texta og annarra og taka þátt í umræðum.

Forkröfur  
Þekkingarviðmið

Nemandi hafi aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • mismunandi tegundum íslenskra bókmennta og bókmenntahugtökum
  • a.m.k. einu lykilverki íslenskra bókmennta
  • ritgerðasmíð og heimildavinnu
  • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • draga saman og nýta á gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum, hvort sem er í ræðu eða riti og meta áreiðanleika þeirra.
  • flytja af öryggi og sannfæringarkrafti vel uppbyggða ræðu eða kynningu á tilteknu efni
  • að lesa mismunandi gerðir ritaðs máls sér til gagns og gamans, skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið
  • ritun heimildaritgerða þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
  • frágangi heimildaritgerða og hvers kyns texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni til betrumbóta
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti
  • útskýra sjónarmið, taka virkan þátt í málefnalegum umræðum til að komast að vel ígrundaðri niðurstöðu
  • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu texta
  • ná duldum boðskap og hugmyndum í bókmenntatextum
Námsmat Símat/leiðsagnarmat þar sem byggt er á fjölbreyttu námsmati í tengslum við verkefnavinnu og ferlisvinnu, enn fremur á smærri prófum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd ÍSA503