ÍSLA1GB05

Titill Grunnur að íslensku B
Námsgrein Íslenska sem annað tungumál
Viðfangsefni Málfræði, lestur, hlustun, ritun og tal
Skammstöfun ÍSLA1GB05
Staða  
Þrep 1
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Í áfanganum vinna nemendur áfram með íslenskt mál sem sitt annað tungumál. Reynt er að koma til móts við þarfir nemenda og staða hvers og eins er metin. Tekið er mið af bakgrunni og færni nemandans.

Unnið er áfram út frá eftirfarandi grunnhugmyndum: 1)Að verða hluti af samfélaginu 2)að tileinka sér nýtt tungumál og 3) að kynnast nýjum menningarheimi

Í áfanganum er lagt upp með að nemendahópurinn kynnist vel innbyrðis og öðlist þannig meira sjálfstæði og öryggi í náminu.

Unnin verða fjölbreytt skrifleg og munnleg verkefni.

Forkröfur ÍSLA1GA05
Þekkingarviðmið

Nemandi hafi aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • grunnorðaforða (atvinna, útlit, heimili, daglegt líf, vísa til vegar, áhugamál, innkaup, líkami, heilsa, ferðalög)
  • grunnþáttum málkerfisins (flóknari beygingar t.d. þátíð sagna)

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

 

 

  • að semja samfelldan texta um efni sem nemandi þekkir eða hefur áhuga á
  • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
  • lesa sér til gagns
  • skilja talað mál um kunnugleg efni
  • taka þátt í samtölum um hversdagsleg málefni
  • að nota hjálpargögn í náminu
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bregðast við einföldum spurningum um daglegt líf
  • bjarga sér í daglegum aðstæðum
  • greina einfaldar upplýsingar
  • fylgjast með frásögnum og erindum
  • átta sig á innihaldi stuttra blaðagreina og texta
  • takast á við margvíslegar aðstæður í almennum samskiptum
  • skrifa um atburði, ímyndaða og raunverulega
  • skrifa samantekt byggða á tilteknu efni s.s. kvikmynd eða blaðagrein
  • skrifa um áhugamál sín
Námsmat Fjölbreytt námsmat. Allir fjórir hæfniþættirnir metnir; tal, ritun, hlustun og lestur.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd ÍSA (193)B