HÖNN2FH05

Titill Saumtækni og sniðagerð
Námsgrein Fatahönnun
Viðfangsefni Fatahönnun fyrir lengra komna
Skammstöfun HÖNN2FH05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Nemendur hanna flíkur sem eru annars vegar fóðraðar og hins vegar framleiddar úr jersey. Farið verður í gegnum ferlið hugmyndavinna, tilraunir, sniðagerð út frá grunnsniðum og tilbúnum sniðum, saumtækni, framleiðsla og markaðssetning.

Kynning á sérstöðu fóðraðs vestis, pils og jakka. Nemendur velja eitt af þessu þrennu og að framleiða flík á ½ saumagínu eða á eigin líkama. Tilraunir með snið og prufuflík úr jersey fataefni.

Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Saumtækni
  • Saumur og fóður
  • Vinna með teygjanleg efni (jersey)
  • Flóknari frágangur á saumum
  • Verklýsing og flatar teikningar
  • Tískuteikning
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Vinna flóknari útfærslur á sniðum
  • Sauma og fóðra einfalda flík
  • Gera eigin vinnulýsingar
  • Fara eftir vinnulýsingum
  • Saumtækniprufur
  • Áætla efniskaup
Hæfniviðmið Nemandi skala geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • Vinna sjálfstætt við snið og sniðútfærslur
  • Sauma einfalda fóðraða flík
  • Þekkja mun á ofnu efni og prjónuðu (jersey)
  • Nota og gera vinnulýsingar
Námsmat Símat: Mæting og virkni. Vinnulýsingar og notkun þeirra. Útfærsla á sniðum metin. Heimapróf. Hópverkefni.  Mat á umfangi, frágangi og vinnubrögðum við saum á eigin flík.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd