HEST3ÞG03
HEST3ÞG03 – Hestamennska bóklegt V - Þjálfun gangtegunda
Lýsing: Í áfanganum er farið í sögu reiðmennsku. Þjálfun hesta og þjálfunarlífeðlisfræði. Safnandi og liðkandi fimiæfingar og eðlismunur á þeim. Hvenær og hversvegna ákveðnar fimiæfingar er notaðar. Farið betur í opinn sniðgang og æfinguna að bakka. Framhaldsgangtegundaþjálfun. Skeiðþjálfun. Íslenskar stangir og notkun þeirra. Keppni á íslenskum hestum. Félagssamtök og stofnanir.
Forkröfur: HEST2KF05, REIM2KF05, FÓHE2HU03 (Eða HEM402 og REM403)
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sögu reiðmennsku.
- þjálfun hesta og þjálfunarlífeðlisfræði.
- skipulagi félagskerfis hestamennskunnar.
- muninum á safnandi og liðkandi fimiæfingum.
- framhaldsgangtegundaþjálfun.
- skeiðþjálfun.
- íslenskum stöngum og notkun þeirra.
- keppni á íslenskum hestum.
- framhaldsþjálfun með tilliti til réttrar líkamsbeitingar hests
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig í ræðu og riti um fagið.
- afla sér upplýsinga á víðtækan hátt um hestamennsku og nýta sér það til framdráttar.
- leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
- nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- miðla þekkingu sinni m.a. í ræðu og riti um sögu reiðmennsku.
- þjálfun hesta og þjálfunarlífeðlisfræði.
- skipulagi félagskerfis hestamennskunnar.
- muninum á safnandi og liðkandi fimiæfingum.
- framhaldsgangtegundaþjálfun.
- skeiðþjálfun.
- íslenskum stöngum og notkun þeirra.
- keppni á íslenskum hestum.
- skipulag félagskerfis hestamennskunnar
Námsmat:
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ritgerðum og ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.