HBFR1HH05

Titill

HBFR1HH05

Heilbrigðisfræði Heilbrigðisfræði
Viðfangsefni  
Skammstöfun HBFR1HH05
Staða  
Þrep 1
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing
Í áfanganum er heilbrigðishugtakið skilgreint. Lögð er áhersla á hlutverk og sögulega þróun heilbrigðisfræði og áhrif hennar á nútíma heilbrigðismál. Fjallað er um helstu heilbrigðisvandamál í nútíma samfélagi og forvarnir gegn þeim.
Áhersla er lögð á forvarnarstarf gegn sjúkdómum og slysum, áhættuþætti sem þeim tengjast og hvernig einstaklingar geta haft áhrif á eigið heilbrigði. Fjallað er um skipulag heilbrigðisþjónustunnar
og helstu stofnanir, sem móta stefnu í forvörnum, heilsueflingu og heilbrigðisfræðslu. Einnig er fjallað um smitsjúkdómavarnir, kynsjúkdómavarnir, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuefnavarnir, geðvernd, beinvernd og mæðra- og ungbarnavernd. Fjallað er um

umhverfisheilbrigðisfræði og tengsl mengunar og sjúkdóma skoðuð ásamt helstu mengunarvörnum.

Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

 

- heilbrigðishugtakinu
- sögulegri þróun heilbrigðisfræði og áhrifum á heilbrigðismál
- helstu heilbrigðisvandamálum í nútíma samfélagi og forvörnum gegn þeim
- uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi
- aðferðum og aðgerðum sem stuðla að heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
- ábyrgð einstaklingsins á eigin heilsu
- helstu umhverfisþáttum sem ógnað geta heilbrigði

         

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

- lýsa uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi

- afla á fjölbreyttan hátt þekkingar um aðgerðir og aðferðir sem stuðla að slysavörnum,

- heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma

- sýna í verki að hann tekur ábyrgð á eigin heilsu

- gera grein fyrir umhverfisþáttum sem geta ógnað heilbrigði manna

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

- útskýra heilbrigðishugtakið út frá mismunandi menningarheimum

- greina samspil lífsstíls og heilsu

- greina eigin lífsstíl og áhættuþætti tengda honum

- álykta um áhrif heilbrigðisfræðinnar á þróun heilbrigðismála í nútímanum

- miðla á skapandi hátt upplýsingum um helstu heilbrigðisvandamál og forvarnir þeirra

Námsmat

Símat, leiðsagnarmat, lokapróf

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd